Fyrir svefninn.

Á leiðinni út í Vík eru hraunhólar nokkrir,
sem nefndir hafa verið Ömpustekkir, en ekki vita
menn lengur af hverju það nafn er dregið. Sagt er
að Vilborgarstaðabræður hafi haft þar stekki,
meðan fráfærur voru tíðkaðar í Vestmannaeyjum,
en það stóð aðein skamma hríð, eftir að konungur
fyrirskipaði fráfærur um miðja 18. öld.
það er haft fyrir satt, að einhverjar verndarvættir
ættu hæli í hraunhólum þessum, því sú var reyndin,
að öll ásókn hætti, er menn komu að ömpustekkjum
á leið sinni utan úr Klauf eða Vík.
Á þeim slóðum hafði jafnan verið reimt, enda þótt það
ágerðist eftir að útlendingarnir voru dysjaðir í
Erlendarkróm á fyrri hluta 19. aldar.
Einhverju sinni voru menn í þangfjöru úti í Vík.
Reiddu þeir heim þang á mörgum hestum,
að þangskurði loknum. Áleiðinni áttu þeir fullt í fangi
með að halda böggunum á hestunum, jafnvel þó að
þeir legðist á baggana, svo þeir færu ekki um þvert bak.
Áttu þeir í þessu stríði með baggana, þangað til þeir komu
að Ömpustekkjum, þá hætti ásókn þessi með öllu, og þurfti
ekki að lagfæra á hestunum úr því. héldu mennirnir,
að vættirnir í Ömpustekkjum hefðu lagt þeim lið.
Svo var trú manna sterk á þessu, að talið var varhugavert,
að vera á ferli eftir dagsetur fyrir sunnan Ömpustekki.
( Sögn Sigfúsar Jhonsen).
Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum.

                    Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt mín kæra Milla

Róslín A. Valdemarsdóttir, 13.5.2008 kl. 20:33

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Gaman að þessu, góða nótt.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 13.5.2008 kl. 22:31

3 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Alltaf gaman að þessu góða nótt elsku Milla mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.5.2008 kl. 23:31

4 identicon

Góða nótt Milla mín.

Silla. (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 23:32

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn snúllur, já Hallgerður sumar af þessum frásögum eru ungar í samantekt.
                                 Knús kveðjur til ykkar allra.
                                     Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.5.2008 kl. 06:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.