Kæru vinir, sem eiga um sárt að binda núna.

Elskurnar mínar þetta er skelfilegt að lenda í.
Eftir allt sem maður er búin að vera að hlusta á í fréttum
undanfarið, hörmungarnar í Burma og Kína þá bregður manni
óneitanlega mikið við.
Þegar maður sér myndirnar í fréttunum, skemmdirnar sem er
auðvitað sárt að horfa á, þá þakka ég guði fyrir að engin hefur
særst alvarlega.

Vonandi kemur ekki annar svona skjálfti.
Guð veri með ykkur öllum kæru landar.
Bloggvinum mínum vonast ég til að heyra í um leið og þeir
komast í tölvurnar sínar.
                        Kærleikskveðjur.
                          MillaHeart


mbl.is Skelfingarástand á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Ég bý í Reykjavík nánar tiltekið í Ártúnsholtinu og íbúðin okkar er tvær hæðir + ris og ég var ein heima á annari hæðinni og það titraði allt hér inni hjá mér og ég vissi ekki hvað var eiginlega í gangi en ástandið er slæmt hjá þeim fyrir austan og það er óskandi að enginn hafi slasast neitt að ráði en þetta er alltaf skelfilegt þegar svona kemur uppá og það verða allir verulega hræddir og ég tala ekki um litlu börnin

en annars knús knús yfir til þín elskuleg

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 29.5.2008 kl. 20:02

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég trúi því að þér hafi brugðið Linda mín, en síðustu fregnir herma að engin hafi slasast alvarlega og vonandi stenst það.
vonandi er þetta líka búið að sinni.

Mamma mín sem er í Skógarbæ í mjódd hringdi alveg hræðilega skelkuð og var hálf grátandi í símanum, ég gat nú róað hana niður
þessa elsku, en það titraði allt hjá þeim og fólk sem getur ekki hjálpað sér sjálft verður að vonum hrætt og óöruggt.

Hvernig hefur hann Gunnar þinn það, Linda mín.
                     Kærleikskveðjur til þín og þinna
                              Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.5.2008 kl. 20:24

3 Smámynd: Heidi Strand

Animales :))) (51 fotos) 1

Heidi Strand, 29.5.2008 kl. 20:55

4 Smámynd: Heidi Strand

Jeg håper at alle kan sove trygt i natt.

Heidi Strand, 29.5.2008 kl. 20:57

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég er búin að vera miður mín yfir þessum fréttum í dag! aumingja fólkið

Huld S. Ringsted, 29.5.2008 kl. 22:05

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þær eru svo flottar þessar myndir frá þér Heidi, takk fyrir mig,
 Vonum það besta stelpur mínar.
                   Knús kveðjur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.5.2008 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband