Fjórar konur kjörnar í bæjarstjórn Reykjavíkur.

Já en þetta var fyrir 100 árum. gaman að lesa þetta.
Kosið var um 18 lista, hugsið ykkur 18 listar í kosningum til
Bæjarstjórnar Reykjavíkur.

24/1 1908. kosningar til bæjarstjórnar Reykjavíkur fara fram í dag.
Samkvæmt lögum frá 22. nóv. 1907 skal kjósa nýja bæjarstjórn frá
rótum, alls 15 fulltrúa. Hiti hefur verið mikill í kosningaundirbúningi
og mörg félög og samtök ýmissa stétta lagt á það áherslu að
eignazt fulltrúa í bæjarstjórn.
Sést það gleggst á því, að alls hafa komið fram 18 listar,
sem kjörnefnd hefur tekið til gilda.
það er og nýlunda við þessar kosningar,
að fram hefur komið sérstakur kvennalisti, og eru á honum nöfn
fjögurra kvenna.
                          -----------------------------------
26/1        Úrslit eru nú kunn í bæjarstjórnarkosningunum.

Frægastan sigur hefur kvennalistinn unnið. Fékk hann flest atkvæði
allra listanna, og kom öllum að fjórum fulltrúunum -- öllum, sem á
listanum voru. Er þetta í fyrsta sinn sem konur taka sæti í
bæjarstjórn Reykjavíkur.

Þetta eru myndarkonur og vildi ég að ég gæti tekið myndirnar upp
og sýnt ykkur, en nöfnin eru.

Frú Þórunn Jónassen.           Forstöðukona Thorvaldssens félagsins.
Frú Bríet Bjarnhéðinsdóttir.   Ritstjóri Kvennablaðsins.
Frú Katrín Magnúsdóttir
Frú Guðrún Björnsdóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Hugsadu tér hvad tessar konur unnu tarft starf.....Tær eru hetjur tímanna tvenna

Knús á tig.

Gudrún Hauksdótttir, 23.6.2008 kl. 18:25

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já þær voru kjarnakonur og það var svo gaman að lesa þetta,
Ég er stundum að glugga í öldinni okkar þá rekst ég á eitt og annað.
                                KnúsMilla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.6.2008 kl. 18:29

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Alveg frábært.  Takk fyrir þetta Milla mín.

Sigrún Jónsdóttir, 23.6.2008 kl. 19:27

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það borgar sig að rifja upp söguna, það kemur ætíð eitthvað út úr því hvort sem það er skemmtilegt eða sorglegt.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.6.2008 kl. 19:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.