Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Hvað er það með konur sem skilja?
27.6.2008 | 12:00
Hef verið að hugleiða þetta afar lengi, horft upp á konur
vera á tánum ef sá fyrrverandi er að koma, til dæmis til að
ná í börnin, koma í afmæli eða að hún hafi boðið honum í mat,
svona bara fyrir börnin.
Þær gera í því að gera sig sætar og fínar, en það voru þær sem
skildu og mundu ekki vilja þá aftur, eða hvað?
Halda þær virkilega að það sé hægt að gera tvö fúlegg að nýjum?
þekki nýlegt dæmi, það er nú bara hlægilegt er hún sú fyrrverandi
er að vorkenna honum, Æ, hann greyið þetta og hitt og svo blótar
hún honum þess á milli.
Allt eru blessuð börnin látin hlusta á og þá kem ég að því,
hvað gerir þetta börnunum?
Ef fólk skilur geta þau þá ekki bara verið vinir, barnanna vegna?
Eitt sem ég hef lengi ætlað að tala um. Inn á allar síður koma
bloggarar og ekki bloggarar, þeir kommenta einhverju,
sem er þeirra skoðun, en svo koma þeir bara ekki meir.
Er þetta fólk spéhrætt, er það hrætt við mótkommentið.
eða þarf það bara að hreyta einhverju úr sér,
og er jafnvel alveg sama um umræðuna?
Hvað hefur fólk út úr því.?
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.4.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 832756
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Ef einhver annar borgar.
- Um fordóma
- Lífheimur sósíalista
- Heimsviðskipti: Frá fræðilegri hagkvæmni til raunhæfs jafnvægis
- Umræður um varnir taka flugið
- Tafir
- Söngsöknuður
- Aukin skattheimta í sjávarútvegi eykur samþjöppun
- Kópavogsfundur um öryggismál
- Bókun 35 - nokkur atriði sem Alþingi ætti að ræða
- "Þó ég sé hlynntur ESB"
- Nýr rektor, hvað með það?
- Nýtt hernaðarbandalag
- Góðvild í verki
- Sjávarútvegurinn er í miklu uppnámi
Nýjustu albúmin
Eldri færslur
2023
2021
2020
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Af mbl.is
Viðskipti
- Verri spá fyrir ferðaþjónustuna
- Vilja beint flug til Indlands
- Skynsemin sigri að lokum
- Tollar Trumps – Samningatækni eða hagfræðileg lausn?
- Mikil tækifæri í sameiningu banka
- Rekstur Íslandspósts líklega nokkuð þyngri eftir Temu
- Díana og Einar ráðin til Reon
- 5,5 milljónir króna á mann árlega
- Argentina í viðræðum við Bandaríkin um tollfríðindi
- Ráðstöfunartekjur á mann 1,6 milljónir
Athugasemdir
Tek undir þetta með þér, ótrúlegt hvað sum börn þjást vegna heimsku foreldra.
Ásdís Sigurðardóttir, 27.6.2008 kl. 12:09
Sammála síðustu ræðumönnum og þér að sjálfsögðu líka Mílla mín.
Knús á þig inní helgina
Helga skjol, 27.6.2008 kl. 13:30
Sammála þér síðustu ræðumönnum.
Knús
Kristín Katla Árnadóttir, 27.6.2008 kl. 13:49
Þetta virðist oft vera hið erfiðasta mál þegar fólk er fráskilið, það á samt að halda áfram að reyna að stjórna því hvernig hinn aðilinn er. Erum við ekki alltaf að reyna að ala hvort annað upp? Maður tekur við af tengdaforeldrunum í uppeldinu. Síðan reynir maður að stjórnast í makanum og öfugt. Það virðist ekkert breytast þegar fólk er búið að skilja. Kannski er komin tími á nýtt sambúðarform hjá okkur mannfólkinu.
Eigðu góðan dag Milla mín.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 27.6.2008 kl. 14:19
Já stelpur það er sko komin tími til að breyta, en fyrst og fremst þarf mannfólkið að læra að virða hvort annað.

Knús til ykkar
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.6.2008 kl. 14:45
Svipað sorgarferli fer í gang við skilnað og við dauðsfall. Með öllum þeim tilfinningasveiflum sem því fylgja... afneitun, reiði, depurð, einmanaleika o.s.frv..
Fólk sem skilur er yfirleitt í mjög miklu tilfinningaróti. Þrátt fyrir að öll skynsemi segi því að tala ekki illa um fyrrverandi og hvað þá fyrir framan börnin þá er oft hægara sagt en gert að ,,hemja" það.
Ég er þó 100% sammála því að besta leiðin er að fráskildir foreldrar eigi að reyna að vera vinir - eða í það minnsta ekki óvinir. Þannig er það í dag hjá mér þegar sárin eru gróin og börnin eru afskaplega ánægð með það.
Allt sorgarferli getur leiðst út í sjúklegt ástand og þegar reiðin er orðin ,,staðbundin" þá er það orðið sjúklegt. Margir (þá sérstaklega konur) vilja festast í reiðinni út í makann og þá fer það að bitna, fyrir alvöru, á börnunum. Ekki dugar þeim að tala illa um föðurinn heldur fara þær að hindra umgengni hans við börnin. Þá er ekki lengur verið að hugsa um hagsmuni barnanna heldur er það hefndarhugur sem ræður gjörðum sem er auðvitað alrangt.
Það þarf virkilega að brýna fyrir fólki að gæta sín í gjörðum og verkum gagnvart börnunum þegar það skilur. Það gæti t.d. verið hlutverk presta sem tala á milli hjóna...
Knús kæra Milla
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 27.6.2008 kl. 15:04
Sammála þér Jóhanna mín, ég veit til þess að prestar tala við fólk en það þarf að vilja og eða geta farið eftir því.
það væri hægt að ræða þetta endalaust, geri mér grein fyrir því.
Sem betur fer voru börnin mín uppkomin er ég skildi, er samt ekki að segja að það hafi ekki haft áhrif á þau, það gerir það ætíð.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.6.2008 kl. 15:16
Það er rétt það væri hægt að blogga um þetta málefni, þarf ekki að vera persónubundið, en svo merkilegt sem það er þá eru fáir til að svara svona málum. Já fólk hagar sér eins og hálfvitar.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.6.2008 kl. 17:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.