Grænmetiskæfa.

Jæja nú fáið þið uppskrift af grænmetiskæfu, hún er góð.

4 dl kasjúahnetur  lagðar í bleyti í 2 tíma.
1 "  Tahini              fæst í Hagkaup og heilsubúðum.
1 st rauð paprika   hreinsuð og skorin í bita.
1 "  sellerístöngull ég setti tvo + blöðin.
3 "  hálfsólþurrkaðir kirsuberjatómatar frá La Selva. Hagkaup.
1 st hvítlauksrif  pressað.   ég lét 4 st.
1 mask. Tamari-sósa.  Hagkaup.
Ferskt basil eða aðrar þær jurtir sem þér góðar þykir
1/2 dl. sítrónusafi
Cayenne pipar á hnífsoddi.
Bætið restinni af hráefninu út í maukið þar til þetta er orðin flott kæfa.

Ef kæfan er of þykk þá þynnið með vatni,
ef of þunn þá þykkið með Tahini.

Gott ofaná kex brauð, má setja kál eða bara það sem þig langar í ofaná.

Þessi uppskrift er gefin í vikublaðinu Vikan af Sollu hinni einu sönn.
Það má frysta hluta af kæfunni ef þetta er of mikið.
Hún endist svona viku í kæli.

Nú skuluð þið bara prófa, hún er æðisleg þessi kæfa,
ég tala nú ekki um ef þið bakið brauðið sjálf.
Látið mig vita hvernig ykkur finnst.
Milla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

líst ljómandi vel á þessa uppskrift en bið verður á að ég prófi þar sem ég á ekkert eldhús í óákveðin tíma. Eigðu góða viku framundan. Kv Hindin

hindin (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 18:23

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú skalt nú bara fá að smakka Dóttir góð, kæfan er himnesk hollusta
og afar SMART eins og Solla segir.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.9.2008 kl. 20:27

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þetta hljómar mjög girnilegt, verst hvað ég hef lítinn tíma þessa dagana í eldhúsinu.............................spurning að færa eiginmanni þessa uppskrift

Huld S. Ringsted, 7.9.2008 kl. 20:32

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það væri þjóðráð, eftir að baunirnar eru búnar að liggja í bleyti
þá tekur þetta 10 mín.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.9.2008 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.