Hjálpum Gísla Sverrissyni og fjölskyldu hans.

Birti þessa hjálparbeiðni sem ég afritaði af síðu Þóris Aðalsteinssonar.
Þórir er kennari á Laugum, og er öllum þar sem annarsstaðar umhugað
um að  Gísli fái allan þann stuðning sem fólk getur veitt
.

15.9.2008 | 13:36

Styðjum Gísla Sverrisson og fjölskyldu hans

Eftirfarandi tilkynning barst mér í tölvupósti og  birti ég hana hér orðrétt.  gislisverris

Gísli Sverrisson er formaður Þríþrautarfélags Norðurlands, sem hefur staðið fyrir þríþraut á Laugum og víðar um Norðurland undanfarin ár. 

"Gísli Sverrisson féll af hjóli sínu 2. september síðastliðinn þar sem hann var við æfingar ásamt félögum í hjólahóp frá líkamsræktar- stöðinni Bjargi á Akureyri.  Við fallið hlaut Gísli hryggbrot og alvarlegan mænuskaða.  Afleiðingar slyssins eru þær að hann er lamaður fyrir neðan brjóstkassa.

Gísla bíður löng sjúkrahúslega og endurhæfing.  Þetta er mikil áfall fyrir hann, konu hans og fjögur börn og mikilvægt að fjárhagslegar áhyggjur bætist ekki ofan á það sem fyrir er.  Fyrir liggja ferðalög fyrir fjölskyldu hans til að styðja við hann í Reykjavík þar sem hann liggur á sjúkrahúsi, auk kostnaðar sem fylgir því að laga sig að breyttum aðstæðum.

Vinir og kunningjar Gísla hafa ákveðið að leggja honum og fjölskyldu hans lið með fjársöfnun.  Í kringum söfnunina verður skíðastaðasprettur þann 20. september n.k.  Nánari upplýsingar um sprettinn eru á www.bjarg.is

Það er einlæg ósk og trú aðstandenda að sem flestir geti lagt Gísla lið með fjárframlagi.  Þú ræður upphæðinni.  Það eina sem þú þarft að gera er að millifæra á söfnunarreikning fyrir Gísla. Reikningurinn er skráður á nafn og kennitölu Gísla.

Reikningsnúmerið er: 0565-14-400216

Gísli Sverrisson: kt. 180561-7069

Aðstandendur og fjölskylda Gísla þakka þér kærlega fyrir veittan stuðning og biðja þig að koma upplýsingunum á framfæri". 

Undir þetta skrifar Hjólahópurinn Bjargi, Akureyri.

Ég biðla til allra minna bloggvina að setja þessa færslu inn hjá sér,
og sér í lagi alla sem eru á Akureyri.
Þar býr Gísli og hans fólk.

             Kærleik í loftið.
               Milla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna

Alltaf sama umhyggjan fyrir öðrum, hjá þér Milla mín

Erna, 16.9.2008 kl. 10:46

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Stelpur ef við getum ekki hugsað um aðra þá eru við nú langt gengnar.
Takk Sigga mín.
Erna mín þú getur nú látið þetta standa hjá þér á meðan þú ferð út.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.9.2008 kl. 11:36

3 Smámynd: Anita Björk Gunnarsdóttir

þetta er skelfilegt

en takk fyrir kvittið hjá mér verð að fara að setja inn myndir 

knús

Anita Björk Gunnarsdóttir, 16.9.2008 kl. 14:20

4 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Já það á að hjálpa þar sem það er hægt, ef við værum í svipaðri stöðu mundum við þyggja hjálpina.

Kærleiksknus Millla mín

Kristín Gunnarsdóttir, 16.9.2008 kl. 14:58

5 Smámynd: Brynja skordal

Brynja skordal, 16.9.2008 kl. 16:00

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Vona bara að sem flestir reyni að gera eitthvað, og að sem flestir setji þessa
færslu inn hjá sér.
Látið ykkur varða.
Kærleik
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.9.2008 kl. 17:19

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sigrún Jónsdóttir, 16.9.2008 kl. 17:27

8 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Já stöndum öll saman Lítið eitt ,,,,,,,,,,gerir stórt !!!!!!!!            Þetta upplifði ég sjálf í des 1989, er ég stóð ein með 2 dætur  og unnusti minn lést af hörmulegu slysi.

Erna Friðriksdóttir, 16.9.2008 kl. 19:20

9 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Mig langar samt að koma að,,,,,,,,, <ð við Íslendingar   viljum svo sannarlega hlúa að þeim sem að lenda í hörmungum.     Og eins og áður segir hef ég svo SANNNARLEGA  kynnst því,,, hvað fólk lagði á plóg sinn fyrir mig og mínar dætur, ég get aldrei þakkað það fullkomlega þó að ég hafi sett einhverja þakklætistilkynningu  í Moggann........ Nú bara blogga ´eg  um þetta

Erna Friðriksdóttir, 16.9.2008 kl. 19:26

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Elsku Erna mín auðvitað viljum við gera allt fyrir þá sem eiga í erfiðleikum,
og við höfum sýnt það Íslenska þjóðin að við getum gert kraftaverk.
Knús og kærleik til þín ljúfust.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.9.2008 kl. 19:47

11 Smámynd: Solla Guðjóns

Solla Guðjóns, 16.9.2008 kl. 22:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband