Lítið sem ekkert breyst.

Það sem hefur breyst er að ekki lengur er hægt að dæma
mann fyrir að sjást eða vera með hvítri konu, en fordómarnir
eru ennþá tilstaðar.
Í Bandaríkjunum eru þeir afar miklir og alveg ótrúlegt að það
skuli vera árið 2008.

Kannski þurfum við svo sem ekkert að vera undrandi fordómar
hafa verið við lýði frá alda öðli og eru en.
Ekki nóg með að Íslendingar séu litnir hornauga ef þeir ná
sér í maka af erlendu bergi heldur er almenningur talinn
annars flokks ef hann er talin öðruvísi, og ekki vert að
koma of nálægt svoleiðis fólki hvað þá að þekkja það.

Hvað eru þetta annað en fordómar.
Legg til að við upprætum fordóma.

                                 Eigið góðan dag.Heart
mbl.is Jack Johnson verði náðaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Góðan daginn Milla mín, ja´þetta eru ekkert annað en fórdómar og þá á alla að uppræta

Kristín Gunnarsdóttir, 27.9.2008 kl. 07:44

2 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Madur kinnist mikklum fordómum og rasistum hér í danmörku.Mikklu meira en á íslandi.

Kannski er tetta ordid líka vandamál á íslandi.Ég reyni ad velja  ad vera í vidurvist fólks sem er fordómalaust og tad reyni ég líka ad vera.

Fadmlag á tig mín kæra.

Gudrún Hauksdótttir, 27.9.2008 kl. 08:02

3 Smámynd: Helga skjol

Knús Milla mín

Helga skjol, 27.9.2008 kl. 08:20

4 Smámynd: Brynja skordal

Held því miður að aldrei verði hægt að útiloka Fordóma en maður lifir í voninni samt sem áður Milla mín....Hafðu ljúfa helgi Elskuleg

Brynja skordal, 27.9.2008 kl. 10:31

5 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Já það eru alltaf einhverjir fordómar því miður Milla mín.........   ef ég las rétt á bloggi dóttur minar (nema að hún sé að djóka ég veit það ekki á eftir að heyra í henni, því stundum vill hún ganga fram af sumu fólki )     þá er hún að fá dökkan meðleigjanda með sér........ hvað með það ??????    Það amk pirrar mig ekki, hehe heh e ekki enþá......... Bestu kveðjur á þig vinan

Erna Friðriksdóttir, 27.9.2008 kl. 10:57

6 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Ég hef fordóma á fordómum. Við eigum enn langt í land með fordóma í garð fólks af ólíkum uppruna. Lagast líklega ekki fyrr en við verðum öll ljósbrún með örlítið skásett augu og krullað hár. Hárið er reyndar komið hjá mér. Hummhumm.

Rut Sumarliðadóttir, 27.9.2008 kl. 11:21

7 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Hva erum við Íslendingar ekki alltaf að reyna að fá okkur brúna litinn ??             OG permanett ????????

Erna Friðriksdóttir, 27.9.2008 kl. 11:25

8 identicon

Þarna er ég þér smmála en það verður örugglega það sem fylgir mannkyninu inn í eilífðina að það er örugglega ekki hægt að uppræta fordóma með öllu. Það eru svo mörg skemmd epli í heiminum og verða sjálfsagt alltaf. En ég hef algjöra óbeit á fordómum og reyni alltaf að láta ekki umtal fólks á öðrum hafa áhrif á mig.Eigðu góða helgi MIll-jónin ín Kv HINDIN

hindin (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 11:49

9 identicon

Ég hefði ekki trúað því hversu mikla fordóma við Íslendingar höfum í raun og veru og þá sérstaklega gagnvart dökku fólki. En ég hef séð það og hlusta á með eigin augum og það nokkrum sinnum.  

Samt erum við alltaf að reyna að verða brún og þá helst svört en þau fara helst ekki út í sól til þess að vera með sem ljósasta húðlitin.

Við erum skemmtilega skrítið fólk.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 11:53

10 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Maður hrasar æði oft um "fordóma þröskuldinn" og ég er þar engin undantekning, því miður.

Knús inn í góðan dag Milla mín

Sigrún Jónsdóttir, 27.9.2008 kl. 12:34

11 identicon

Sæl Milla mín.. Ég vil vera kurteis tilkynna þér og öllum þeim vinum sem við áttum sameiginlega  að sér skondraði mér út af blogginu í gærkveldi svona einn tveir og þrír BANK.  Ég ætlaði að henda út hliðar bloggi sem ég var með en tókst með ágætum að henda öllu SNILLINGUR.  Ég lít á þetta sem nýtt upp haf og breytingar á forgangsröðun í lífi mínu. Ég veit að flestir af mínum bloggvinum kíkja inn á þig þannig að ég vil nota tækifærið og þakka ykkur öllum bloggvináttu á þessum 10 mánuðum sem ég var að fikta  við að tjá mínar skoðanir. Ég mun fylgjast með ykkar skrifum og setja inn eitt og eitt coment.  Blessun fylgi ykkur öllum alltaf alla daga og nætur..Þúsund kossar og krams..

Ps: Ég nenni ekki að fara inn á alla núna til að tilkynna þetta..því geri ég þetta svona og lít á Millublogg sem upplýsingamiðstöð fyrir mig..

Sigga Svavars (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 12:37

12 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Ég verð nú að fá að tjá mig um Siggu Svavars. Ég trúi ekki að þú ættlir að hætta, það verður mikil eftirsjá af þér Sigga min, viltu ekki taka þetta til endurskoðunar, þú ert svo yndisleg kona

Kristín Gunnarsdóttir, 27.9.2008 kl. 13:58

13 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Maður verður nú bara að fá að elska þann sem maður elskar burtséð frá lit og öllu öðru.  Kær kveðja í norðurátt eða norðaustur frá mér.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.9.2008 kl. 15:36

14 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Ja maður gæti hrasað um tungunaKveðja rugludallur nr 3 búin að ákveða það

Ólöf Karlsdóttir, 27.9.2008 kl. 17:02

15 Smámynd: egvania

Hæ Milla mín ég er á smávegis bloggvina rápi í dag.

Kærleiks kveðja Ásgerður

egvania, 27.9.2008 kl. 17:15

16 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Stelpur mínar þakka ykkur öllum fyrir innlitin, þið eruð einlægar í ykkar svörum.
 ætla ekki að svara öllum núna var að koma heim þurfti snögglega að fara af bæ.

En eitt, snilldarmælt hjá Rut að hún hafi fordóma á fordómum.

Sigga mín þú mátt svo sannarlega nota mína síðu að vild.
heyri betur í þér.

Knús til ykkar allra
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.9.2008 kl. 21:19

17 identicon

Jú en eigum við ekki öll sama tilveruréttinn í veröldinni ,sama í hvaða lit við erum ,það hefði ég allavega haldið.

Jón Reynir Svavarsson (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 23:04

18 Smámynd: Heidi Strand

Mér finnst þetta skrýtin frétt. Betra væri að laga því sem fer úrskeiðis í dag.Ég held að kaninn hafði um nóg annað að hugsa.
Þegar ég til dæmis hlusti á norskumælandi menn og konur í sjónvarpinu, pæli ég ekki í hvort þeir eru útlendingar eða ekki.

Allir þjóðir eru svo blandaðir og smá saman minnka fordómarnir.
Ég held að þegar börn sem alast upp í fjölþjóðlegt samfélag, verða fordómalausir einstaklingar. Þetta er líka mikið undir foreldrarnir og aðrir uppalendur komið.

Heidi Strand, 27.9.2008 kl. 23:09

19 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Er það ekki það sem ég er að segja Jón?

Heidi mín foreldrarnir eru vandamálið það hefur til dæmis aldrei verið til unglingavandamál bara foreldravandamál.
Knús knús og gaman að sjá þig aftur
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.9.2008 kl. 07:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband