Ljós í myrkri.
7.11.2008 | 20:08
Á þessum skammdegisdögum er nauðsyn að birta og ylur kærleiks
og vinskapar streymi um nágrenni okkar. Við þyrftum nú strax að
hvetja alla til að byrja á því sem kallað er -Ljós í myrkri-.
Í fyrstu væri einungis lifandi kertaljós í einum glugga, falleg kveðja
til nágrannans.
Þetta er í raun byrjun á ljósaskreytingu aðventunnar en væntanlega
meir með hvítum ljósum sem síður eru tengd sjálfum jólunum. Stígandi
væri í þessu sem byrjaði á kertaljósi í glugga og endar í fallegum
velupplýstum gluggum í byrjun aðventu.
Látið þetta berast.
Á jökultindinum
lýsir bergkristallinn
langar leiðir
allt í kringum hann
svífa ljóðin
fjólublá
turkís rauð
í morgunkyrrð.
Við göngum
inn í ljósið
ljóðin
ljóðlýst
í tindinn.
Úr ljóðabók um Hvannadalshnjúk
Hallfríður Ingimundardóttir.
Góða nótt.
Athugasemdir
Kvitt og knús.
Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 7.11.2008 kl. 21:50
Setti svörin inn, geturkíkt á þau ef þú hefur áhuga.
Annars bara hafðu það gott um helgina.
Anna Guðný , 7.11.2008 kl. 21:51
Hólmdís Hjartardóttir, 7.11.2008 kl. 22:35
Góða nótt elsku Milla
Erna, 8.11.2008 kl. 01:28
Góðan daginn skjóðurnar mínar.
Eigið allar yndislegan dag í dag
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.11.2008 kl. 08:45
Mikið er þetta fallegt.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 8.11.2008 kl. 12:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.