Fyrir svefninn.

Hrannar sonur

Ég eignaðist lítinn frænda í gærkveldi, er hann ekki yndislegur?
Ég  þurfti bara í smá aðgerð svo ég er svolítið sybbin en það
er bara allt í lagi með mig enda af sterku fólki kominn.
Pabbi minn er Hornfirðingur og mamma mín er reykvíkingur en á
ættir að rekja út um allt eins og við öll og hún Milla frænka er
afasystir mín í móðurætt.
Til hamingju elsku Hrönn mín og Óli Gísli með yndislega soninn ykkar.
Fyrir eiga þau Hrannar sem er 4 ára.

Við fórum fram í Lauga í dag, ég fór á Bókaupplestur og var það að
vanda afar skemmtilegt, fengum kaffi og nýbakaðar kleinur.

Fór síðan upp til Dóru minnar þar voru vinir í heimsókn með sína þrjá
einn 4 ára og tvíbura um eins árs, frábærir strákar.

               Það  haustar. Húsið smýgur
               nú hregg og golan stinn
               og fugl að glugga flýgur
               og fegin vildi inn.
               En upp við eldastó
               á Kisu svefnþrá sígur
               hún situr þar í ró.

               En hvaða hugarfró bíður
               Þér hýrlegt draumatal?
               Í minning langt þú líður
              að ljúfum bernskudal,
              þar fyrstu fannstu von,
              og vorblær þuldi þýður,
              og þú varst konungsson.

                              Bjarni frá Vogi þýddi.

Góða nótt.
HeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til hamingju með litla frændann  Góða nótt ljúfa kona

Sigrún Jónsdóttir, 7.12.2008 kl. 21:29

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk elskurnar mínar.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 7.12.2008 kl. 21:45

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Til hamingju með litla frændann, hann er yndislegur litli stubburinn

Góða nótt Milla mín

Huld S. Ringsted, 7.12.2008 kl. 21:46

4 Smámynd: Erna

Til hamingju með frænda, bara krútt eins og frænka  Góða nótt Milla mín

Erna, 7.12.2008 kl. 21:50

5 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Til hamingju með frændann. Hvað er yndislegra en lítil börn?

Helga Magnúsdóttir, 7.12.2008 kl. 21:54

6 Smámynd: Brynja Dögg Ívarsdóttir

Til hamingju með frændann, myndardrengur.

Hafðu það sem allra best Kv Brynja og Emma, sem biður að heilsa Neró.

Brynja Dögg Ívarsdóttir, 7.12.2008 kl. 22:07

7 Smámynd: Sigríður B Svavarsdóttir

Til Hamingju Milla mín.  Fallegur þessi litli snáði. Hann verður einn af þeim mörgu sem tekur á sig skuldir þjóðarbúsins, en svona eyddum við fyrri kynslóðir arfleiðinni sem við fengum.  Verða ekki allir að finna upp hjólið. Reynslan nægir okkur ekki. Okkur fannst gamaldags að hlusta á forfeður okkar, og lokuðum eyrunum. Gengu þeir annars ekki sama hring og við, bara við aðrar aðstæður.. Góða nótt Elskuleg..

Sigríður B Svavarsdóttir, 7.12.2008 kl. 22:38

8 Smámynd: Brynja skordal

Awww yndislegur Gullmoli til hamingju öll með hann Góða nóttina Milla mín elskuleg

Brynja skordal, 7.12.2008 kl. 22:44

9 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Milla mín til hamingju með fallega frænda þinnog til allra sem eiga hannKveðja Óla

Ólöf Karlsdóttir, 7.12.2008 kl. 22:55

10 Smámynd: Líney

Innilega  til hamingju með  litla kútin,vona að honum heilsist vel núna

Líney, 7.12.2008 kl. 23:14

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innilega til hamingju með litla frænda þinn megi hann dafna vel

Ásdís Sigurðardóttir, 7.12.2008 kl. 23:32

12 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Fallegur er hann. Til hamingju með hann frænda þinn Milla mín og góðan daginn

Kristín Gunnarsdóttir, 8.12.2008 kl. 07:38

13 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn skjóðurnar mínar, hér er leyðindaveður en maður tætur það ekki stoppa sig þarf að fara í bæinn en bara smá er birta tekur.

Litli maðurinn er og verður bara flottur þegar hann er búin að jafna sig
þá fer hann heim með mömmu sinni og þar verður dedúað við hann.

Ljós í daginn ykkar
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.12.2008 kl. 09:03

14 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sigga mín svo satt og rétt sem þú segir, allir hafa farið hringinn við misjafnar aðstæður og það skildi eftir sig mismikinn usla og skuldir.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.12.2008 kl. 09:06

15 identicon

Til hamingju með litla frænda Milla mín, mikið eru þau alltaf yndisleg þessi litlu ljós.

Knús og ljós til þín

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 13:50

16 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já þau eru bara yndisleg og hann er svo kær mér þessi litli kútur því mér þykir svo vænt um fólkið hans, Ingó bróðir er afi hans.
Ljós til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.12.2008 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband