Fyrir svefninn.

             Helltu út úr einum kút.

Einhvern tíma voru tveir kunningjar, annar ungur, en hinn
aldurhniginn; er svo sagt, að hann væri ölkær, og hafi hinn
yngri lofað honum í veizlu sína. En áður en hún yrði haldin,
dó hinn gamli maður. Var hann grafinn á hinum sama kirkjustað
og hinn kvæntist, og var veislan haldin á Kirkjustaðnum.
Um nóttina dreymdi brúðgumann, að vinur sinn kæmi til sín
og kvað:

            ,, Helltu út úr einum kút
               ofan í gröf mér búna;
               beinin mín í brennivín
               bráðlega langar núna."

 

Hann fór á fætur og hellti úr fjögra potta kút yfir leiði vinar síns
og dreymdi hann eigi framar.

Góða nótt kæru vinir og sofið rótt.
HeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Góða nótt Milla mín og dreymi þig vel......................

Erna Friðriksdóttir, 11.1.2009 kl. 21:55

2 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Skondin saga. Góða nótt Milla mín og bið að heilsa norður

Anna Ragna Alexandersdóttir, 11.1.2009 kl. 23:53

3 identicon

Daginn héðan af sunna í tveggja stiga frosti

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 07:04

4 identicon

Góðan daginn kæra Milla.  Bara að kasta á kveðju og láta vita að ég fylgist með þó ég sé slappur á eigin bloggi þessa dagana.. Náði að anda að mér norðlensku lofti á Akureyri um helgina en því miður ekki í það þingeyska í þetta skiptið.  Verður í sumar.  Eigðu góðan dag.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 09:18

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 12.1.2009 kl. 09:25

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn gott fólk. já ég gleymdi að geta þess að sagan er tekin upp úr draugasögum Jóns Árnasonar.

Tveggja stiga frost langbrókin mín, hér er hann að spá upp í 20 stiga frosti á morgunn svo ég er bara inni til að undirbúa mig

Já hafa fyrir vin Auður mín kannski hefur hann ekki þorað annað en að fylgja honum eftir, vinurinn var nú dauður.

Einar minn það ætla ég nú hreint að vona að ég fái ykkur augum að líta í sumar.

Ljós í daginn ykkar
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.1.2009 kl. 09:47

7 Smámynd: Svandís Magnúsdóttir

Kærar þakkir fyrir hveðjuna  Milla  það verður gaman að tala við þig trúi ég .Kveðja  Klúka í vogum.

Svandís Magnúsdóttir, 12.1.2009 kl. 20:51

8 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Anna Ragna Alexandersdóttir, 13.1.2009 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband