Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Einn af þessum gömlu góðu.
17.1.2009 | 13:06
Chesley Sullenberger flugmaðurinn ráðagóði. Reuters
// Erlent | AFP | 16.1.2009 | 18:52Bush hringdi í Sullenberger
George W. Bush Bandaríkjaforseti hringdi í dag í Chesley B. Sullenberger, sem er flugmaðurinn sem náði á ótrúlegan hátt að lenda farþegaflugvél á Hudsonfljóti í gær án þess að nokkur hlyti alvarlegan skaða af. Alls voru 155 í vélinni.
Bush hrósaði flughæfileikum og hugrekki Sullenbergers, og sagði að hann hefði drýgt hetjudáð þegar hann sá til þess að allir um borð kæmust út úr vélinni heilu á höldnu.
Þá hafa borgaryfirvöld í New York afhent Sullenberger lykilinn að borginni sem þakklætisvott.Svaka flottur maður og alveg örugglega góður flugmaður.
Það má einnig geta þess að við höfum átt bestu flugmenn
sögunnar, eða svo hermdu erlendir fréttamenn hér á árum áður.
Ég man þá tíð vel er flogið var á þristunum út á land, næstum
í öllum veðrum og gerðu þeir oft kraftaverk þessir frábæru strákar.
Heyr fyrir góðum flugmönnum og þeim sem eru í þessu af hugsjón.
Bush hringdi í Sullenberger | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.5.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Bimbo's Ball, ljóð frá 9. júní 2019
- HVERNIG VISSUÐI AÐ ÞANNIG VILDI ÉG HAFA ÞAÐ!
- Miklu fleiri en tíu heillandi staðir á Íslandi.
- Góð bæjarferð, frændi kvaddur og unglingar með viti
- Barátta tveggja íslenskra mæðra gegn þessari svokölluðu "kynfræðslu" í skólunum!
- Bæn dagsins...Háðsyrði um hjáguðadýrkun.
- Markmiðið að sem flestir ungar komist á legg
- Djöfuls fífl!
- Orkumálastjóri gleymdi raforkunni
- Byltingarkennd hugmynd
- Kosturinn við Kína er fjarlægðin
- Hinir banvænu anti-Hamas bananar
- Það er rétt að halda til haga svona fróðlegu fræðsluerindi um NÝJA-ORKUKOSTI:
- HANN ER EKKI ALLTAF FYNDINN - NÚ ER HANN ORÐINN HLÆGILEGUR.....
- Hvar er ríkissaksóknari og RSK
Nýjustu albúmin
Eldri færslur
2023
2021
2020
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Af mbl.is
Innlent
- Halla Hrund og Katrín með fundi fyrir norðan
- Fjárfestu fyrir 3,5 milljarða í samgönguinnviðum
- Aðeins 10-12% kynferðisbrota tilkynnt
- Vond lykt eftir verktaka
- Þjóðfélagið verður skemmtilegra
- Harma umfjöllun um fyrsta hinsegin frambjóðandann
- Fjöldi lögreglumanna svipaður og fyrir 35 árum
- Donald Trump hefur keyrt svolítið á þessu
- Lægðir og langþráð rigning í vændum
- Sættir sig ekki við nýja hurðarhúninn
- Samþykktu skipun rannsóknarnefndar um snjóflóðið í Súðavík
- Verðskulda allir frambjóðendur jafna athygli?
- Dreymdi sjö seli: Katrín verður forseti
- Áður séð sama fjölda manndrápsmála
- Hermann flyst um embætti og fallið verður frá ráðningarferli
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Frábær maður! ég er svo flughrædd að það hálfa væri nóg. Trúlega rétt hjá þér með íslensku flugmennina enda íslensk veðrátta engu lík.
Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 13:21
Réttur maður á réttum stað
Hólmdís Hjartardóttir, 17.1.2009 kl. 13:37
Alveg dásamlegt við eigum mjög góða flaugmenn líka. Kær kveðja
Kristín Katla Árnadóttir, 17.1.2009 kl. 13:41
það gleymist hann hafði flugmann sér við hlið
Ólafur Th Skúlason, 17.1.2009 kl. 13:42
Á s.l. 3 árum hef ég flogið mikið í innanlandsflugi í Bandaríkjunum í vinnuferðum þ.m.t. US Airways (sem gárungarnir kalla stundum Useless Airways :), þykja stundum óstundvísir). Man ekki eftir að hafa þurft að fara með faðir vorið mörgum sinnum í flugferðum þó veður hafi verið misjafnt eins og gengur og þurftu að bíða stundum 2-3 tíma út í vél að bíða eftir flugtaki vegna bilunar. Þó man ég eftir flugi á milli Washington og NY. 40 stiga hiti úti og loftræsting biluð. Flugstjórinn sagði að þetta myndi lagast þegar við kæmum í loftið sem að sjálfsögðu gerðist. En ég hugsaði ef menn eru svona kærulausir út af loftræstingu gæti þá eitthvað annað...En mér leiða alltaf best þegar ég var kominn þotu Icelandair á leiðinni heim. Leið öruggast. Sjáfsagt bara góð tilfinning. Öryggisreglur í flugi eru gríðarlega strangar út um allan heim. Þetta er öruggasti ferðamátinn. Eigðu svo góðan dag mín kæra Milla.
Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 15:13
Já réttur maður áréttum stað, ert þú flughrædd Hallgerður mín, það er ekkert öruggara en að fljúga á milli staða.
En hræðslan er ekkert grín.
Ólafur kannski hefur liðið yfir Pilotinn.
Einar besta eftirlitið er á Íslandi allavega enn sem komið og er ég búin að vera nálægt fluginu síðan ég var að vinna hjá Loftleiðum er ég var "þú veist" yngri. Hef alla tíð haft ofurtrú á þessum gömlu góðu.
og hef flogið mikið með þeim.
Gaman að heyra þetta frá þér Einar, Icelandair var nú löngum kallað Ícelandair de late.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.1.2009 kl. 17:28
Ég hefði nú ekki viljað vera í þessari vél þrátt fyrir greinilega snilldar flugmann
Leiðinlegt að sjá þig ekki á morgun á hittingnum Milla mín, farðu vel með þig
Huld S. Ringsted, 17.1.2009 kl. 18:45
Sjáumst síðar Huld mín, kveðja til ykkar allra.
Milla
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.1.2009 kl. 20:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.