Fyrir svefninn.

Spennufall eða hvað á maður að kalla það, þó ég hafi
ekki þóst fylgjast með því sem var að gerast í landi voru
eða ekki svo mikið, þá er ég bara alveg tóm núna, af hverju?
Auðvitað fylgist ég með og hafði skoðanir á öllum málum.
Hvort þær voru viturlegar eða ekki þá sakna ég þeirra því
nú þarf ég að skipta um gír ef þið skiljið hvað ég meina?

Jæja skítt með það maður er nú ekki svo lengi að koma sér
í annan gír, eða hvað?
Nú gef ég  þessari ríkisstjórn tækifæri, en ég mun að sjálfsögðu
fylgjast með, ekki það að ég hafi eitthvað að segja, nei nei,
en þið vitið að ekkert má koma manni á óvart þegar maður
tekur ákvörðun um að treysta.
Kannski er ég að taka ranga ákvörðun, bara veit það ekki strax.

              **********************************

Þorravísur

Mörgum reynist þráin þung
að þorrans njóta kosta.
Sæðisfullan súran pung
sjúga menn af losta
.

Bringukolla á borðið set
brosir þá minn kviður.
Reykt og saltað rolluket
rennur þangað niður.

                       þessi er eftir hana Ósk

Góða nótt kæru vinir vona að þið séuð
ekki eins tóm og ég er
Heart Sleeping Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Kvitt og kveðja 

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 1.2.2009 kl. 21:04

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góða nótt ljúfa kona

Sigrún Jónsdóttir, 1.2.2009 kl. 21:21

3 identicon

Já Milla mín við höfum ekki annan valkost í bili en að gefa Jóhönnu okkar sinn séns. En þínar skoðanir eru bara fínar og góðar. Þessi dagur er búinn að vera ágætur. Og svo vann Liverpool. Kannski fyrirheit um góða tíð? Hafðu það svo sem allra best og góða nótt og kveðjur.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 21:44

4 Smámynd: Anna Guðný

Eina sem mér líst alls ekki á er hversu mörg ráðuneyti SJS fékk.

En við gefum þeim sjens og vonum það besta.

Anna Guðný , 1.2.2009 kl. 22:25

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Kæru vinir það gæti verið okkar heill að Liverpool vann í gær þó sagt sé að fall sé fararheill frá húsi en ekki að og við vorum að fara að í gær.
Það skiptir ekki neinu máli hvað SJS fékk mörg ráðuneyti hann ræður svo miklu hvort sem er.
Við sjáum svo hvað setur, fylgjumst með og slöppum af.
Vallý mun skoða myndina.
Ljós í daginn ykkar
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.2.2009 kl. 06:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.