Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Missum fólk úr landi.
12.2.2009 | 11:21
Stórt samfélag Íslendinga er í Gimli. Árni Sæberg
Íslendingar á leið til Kanada
Íslenskur bakari, Birgir Róbertsson, gæti orðið meðal þeirra fyrstu sem flytjast vestur um haf til Gimli í Manitoba í Kanada, vegna kreppunnar sem skall á landanum í haust. Hann vonast eftir nýrri byrjun" í bænum, sem laðaði til sín fjölda Íslendinga í svipuðum sporum fyrir meira en öld
Já við eigum mikið af ættingjum í Gimli og Kanada öllu.
Það er auðvitað sárt að missa fólk úr landi, en hvað á
það að gera er enga atvinnu er að hafa?
Mér finnst líka bara allt í lagi að allir þeir sem hafa löngun
til breytinga skelli sér í það.
Aftur á móti er verra með þá sem ekki vilja flytja úr landi,
en neyðast til þess vegna þess að þeir hafa ekki vinnu.
Vona ég bara að allir þeir sem skella sér út í ævintýrin
hafi það gott og að þeim vegni vel.
![]() |
Íslendingar á leið til Kanada |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.5.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Samningaviðræður án skilyrða
- Að hafa kjark til að halda uppi sögunni
- Bæn dagsins...
- Karlar eru ekki mæður
- Hægt og bítandi eru hneykslismálin að grafa undan ríkisstjórninni og sumum í embættismannakerfinu
- Fundur nk. mánudagskvöld kl. 20
- Fundur um Bókun 35
- Viðbótarerindi nr.7 til Umboðsmanns Alþingis
- Framleiðni og arðsemi í sjávarútvegi
- Þjóðaröryggi á óvissutímum
- Pólitískt feminismál
- Skyldur embættismanna
- Lenging vinnuvikunnar
- 13% fækkun fæðinga á LSH veturinn 2021/2022
- Er þetta eitt stórt A-Þýskaland í öðru veldi?
Eldri færslur
2023
2021
2020
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Verndað af höfundarrétti. Öll réttindi áskilin. | Þema byggt á Cutline eftir Chris Pearson
Athugasemdir
Mér finnst það mjög alvarlegt ef búferlaflutningar verða í stórum stíl, því þá verður það bara erfiðara fyrir þá sem eftir sitja og nægilega erfitt er ástandið fyrir.
Sigrún Jónsdóttir, 12.2.2009 kl. 12:12
Slæmt að missa þekkingu úr landinu en skiljanlegt. Þetta hefur gerst annars lagið í sögu þjóðarinnar. En menn þurfa gott föðurland fyrir veturinn á þessum slóðum í Kanada. Það gæti annars frosið undan..þú veist manni.
En bjúti á sumrin á móti. Fór í nokkrar vinnuferðir til Montreal og Quebec á s.l. árum. Þekki kuldann. En þeir kunna að bjarga sér. Montreal er "moldvörpuborg" verslanir neðanjarðar. Út af kuldanum. Skemmtileg borg Montreal. Qubece er falleg. Evrópskt enda franska aðaltungumálið í þessu héraði. p.s. Af hverju skrifaði ég ekki bara færslu um þetta...afsakaðu.
Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 13:16
Já Sigrún mín en hvað á fólk að gera það hefur ekki vinnu.
Knús á þig
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.2.2009 kl. 13:28
Segi það nú líka
en annars máttu bara skrifa eins og þú vilt hjá mér.
Mundi alveg vilja fara til Kanada að sumri til, en ætli það verði ekki í næsta lífi.
Knús
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.2.2009 kl. 13:31
Það er spurning hvort maður stökkvi bara ekki líka yfir til frænda vorra í Kanada...
Í það minnsta á ég mjög stóran frændfólkshóp þarna í Gimli frá Langafatímabili í minni ætt. Stór hópur þar ennþá sem er í fjölskyldunni.
Knús og kram Millan mín og hafðu ljúfa helgina!
Tiger, 12.2.2009 kl. 16:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.