Fyrir svefninn.

Þetta er nú meiri fjandans pestin, maður heldur að hressan
sé að koma, en nei ekki aldeilis, sefur hálfan daginn, vakir
frameftir að vonum, öfugsnúið er það mjög.
Fórum aðeins yfir húsið í morgun, síðan að taka bensín ég með
því það var einhverpúki í mér enda fór ég inn á N1 og keypti
langlokur og smá namm sko handa barnabörnunum og líka
okkur. Maður verður nú að svindla svolítið.ToungeWizard

Sofnaði síðan um 12 leitið og svaf til 4 dreif mig fram og við
byrjuðum að elda matinn, það var Bæóný skinka með öllu tilheyrandi
ódýr en óhollur matur.
þær komu svo mæðgur og borðuðu, Milla og ljósin.
Og það var bland í poka í eftirrétt.Whistling

ufos_devas_and_sea_life_66_818115.jpg

Mér finnst þessi mynd alveg yndisleg.
Hún sýnir okkur svo margt.

Góða nótt kæru vinir
HeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Batakveðjur og dreymi þig góða drauma.

Ía Jóhannsdóttir, 24.3.2009 kl. 21:47

2 Smámynd: Auður Proppé

Góða nótt Millan mín og takk fyrir í dag, fallegu orðin þín skipta mig miklu máli elsku vinkona.

Auður Proppé, 24.3.2009 kl. 22:01

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Láttu þér batna Milla mín og myndin er sannarlega flott.

Hilmar Gunnlaugsson, 24.3.2009 kl. 22:24

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góðan bata Milla mín og góða nót

Sigrún Jónsdóttir, 24.3.2009 kl. 22:27

5 Smámynd: Elísabet Sigmarsdóttir

Farðu nú vel með þig Milla mín Myndin er mjög falleg. Það er allt í góðu að fá sér nammi af og til. Ég var að panta mér mjólkurlaust páskaegg í dag , og keypti svo annað egg sem ég ætla að gefa mömmu

Elísabet Sigmarsdóttir, 25.3.2009 kl. 00:26

6 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Farðu vel með þig Milla mín......... Þetta facebook,    ja hérna ég er komin á það .. okey,,,,,,,,, en mér þykir amk bloggið skemmtilegra og nánara ...

Erna Friðriksdóttir, 25.3.2009 kl. 02:22

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ia mín þessi skítur fer úr mér haf bara heyrt að það taki tíma

Silla mín við sofnuðum saman eins og skotin gamla settið og vöknuðum núna um sjö leitið.
Gísli minn er nú ekki vanur að fara eins snemma og ég en stundum er hann þreyttur.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.3.2009 kl. 07:39

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Auður mín það gefur mér mikið bara ef þér líður vel elskan mín

Takk Hilmar minn og myndin er flott.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.3.2009 kl. 07:41

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk Sigrún mín

Lisó mín er hægt að panta sér mjólkurlaust súkkulaði?
Það er nú aldeilis flott, það eru svo margir sem þola ekki mjólkina.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.3.2009 kl. 07:43

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Vallý þetta er svo lúmskt, maður heldur að allt sé að koma, en nei þá kemur eitthvað þú veist þetta nú elskan standandi í þessu sjálf.

Erna mín ég er þér sammála, bloggið er skemmtilegra.
Facebokkið er gott til dæmis ef maður á ættingja erlendis, það gefur manni mikið að hafa svona sambönd við þá, ég á alveg fullt að ættingjum og hef aldrei haft eins mikið samband eins og núna við sum af þeim.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.3.2009 kl. 07:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.