Fyrir svefninn

Bloggarahittingur norðan heiða.

Endurtek þetta nú því það er svo stutt
síðan við hittumst síðast að einhver gæti
misst af, en það má ekki.

Hvernig er eiginlega með þetta fólk, fær það aldrei nóg af hvert öðru? Nei, það virðist ekki vera.

Meiningin var að halda grillpartý á Laugum hjá henni Dóru 6. júní. Það er ekki hægt þá helgi, því við sjómannskonurnar komumst að því að þetta væri sjómannadagshelgin. Og ef ég ætti að velja á milli þess að fara út að borða með eiginmanninum eða í grill á Laugum, já þið vitið hvað ég myndi velja.

Því partýi ætlum við því að fresta þangað til tveim vikum seinna eða 20. júní. Dóra, verður snjórinn ekki örugglega farinn þá? Wink Segi svona.

Það er ekki nokkur leið að við getum sleppt því að hittast í millitíðinni svo að meiningin er að koma saman um næstu helgi eða laugardaginn 16. maí.

Sami staður eða Kaffi Karólína í Listagilinu.

Verðum þó með þetta aðeins fyrr svo Eurovision aðdáendur hafi nægan tíma til að undirbúa kvöldið

og byrjum því kl. 15.00

Nýir þátttakendur velkomnir.

Hlakka til að sjá ykkur


Mætum öll því þetta er svo gaman
Já og langar til að biðja þá sem ætla að koma að sleppa
ilmvatni og rakspíra, því það verður kynning á slíkum vörum
og þarf fólk því að geta sett á sig ilm
.

Góða nótt kæru vinir Heart Sleeping Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég kem og örugglega Halli þegar hann er búinn að loka

Góða nótt Milla mín

Huld S. Ringsted, 12.5.2009 kl. 22:39

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Elsku Huld það verður gaman að sjá ykkur eins og ævilega.

Ljós í daginn þinn
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.5.2009 kl. 07:29

3 identicon

Halló þið verðið ekki án mín, ég kem örugglega ef ég slepp út. Kveðjuknús gustarina. ÉG KEM:

gustarina (IP-tala skráð) 13.5.2009 kl. 16:41

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásgerður mín auðvitað og þú veist að það er hægt að ná í þig dúllan mín
kærleik til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.5.2009 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.