Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Sorgmædd.

Hvað er langt síðan að allir vissu um þetta mál,
en auðvitað var von til þess að málið mundi snúast við,
eða hvað? Líklegast getum við alveg hætt að treysta á að
eitthvað sé gert rétt fyrir okkur.
Ég varð ekki fyrir skerðingu, en fæ samt ekki nóg,
get aldrei gert neitt, reykji ekki, drekk ekki,
fer aldrei á skemmtanir, leikhús eða annað slíkt,
hvað þá það fólk sem varð fyrir þessari skerðingu,
hvað gerir það fólk???
Hvað þurfum við að krjúpa lengi fyrir ráðamönnum þessara þjóðar,
til að fá mannsæmandi laun og virðingu.
Hef ekki heyrt það ómanneskjulegra !!!!!!!!!!!
(Þeir þurfa að leiðrétta tekjuáætlun
til að fá rétta útborgun næst,
uppgjör þessa árs bíður endurreiknings næsta haust).
eins og ég hef sagt áður: ,,Svei attann"
Held að tið ættuð að taka ykkur tak, ráðfólk,
og sinna þessu strags.
mbl.is Gleðileg jól fyrir 29 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Steinólfur bóndi stundaði rjúpnaveiðar í hjáverkum.
Hann var ekki við eina fjölina felldur í kvennamálum.
Einu sinni var hann að búast á rjúpnaveiðar,
en brá sér fyrst upp á loft og inn í herbergi
til stúlku einnar, sem þar var.
Kona hans mun hafa haft veður af þessu og þótti
bónda sínum dveljast fullengi á loftinu.
Hún fór því á kreik til að vita, hvað títt væri með hann.
Bóndi heyrði hana koma upp stigann. Hann brá við skjótt,
og varð það hans fangaráð, að hann skreið hálfur
inn undir rúm, og þegar kona hans opnaði herbergisdyrnar,
sagði hann hróðugur: ,, ég vissi að átti hérna skot!"

Afmælisveisla.

Elsta dóttir mín á afmæli í dag og var hún í fríi.
Hún fékk heimilið lánað hjá mömmu til að bjóða okkur öllum
í mat, og fengum við kjöt í karrý, það hefur ætíð
verið vinsællt í þessari fjölskyldu.
Á eftir var hún með ís, kaffi og allskonar nammý
af betra taginu.
Engillinn minn er að keyra þær framm að Laugum núna,
Milla og Ingimar eru löngu farin heim með litlurnar.
Allir þurfa að vakna í vinnu og skóla á morgunn.
Góður dagur í dag.

Nauðsynleg göng.

Það er nauðsynlegt að byrja á Hvalfjarðargöngum
og það strax, þegar þau verða tilbúin,
verður komið upp vandræða-ástand í þeim göngum sem fyrir eru.
Ég hef ætíð verið meðmællt því að framkvæma það sem brýnnt er.
Þótt það kosti lánsfé.
Að hika er sama og að tapa, svo byrjið núna, og það eru
fleiri göng bráðnauðsinleg, td. Vaðlaheiðagöng.
Strákar kraftinn í þetta núna.
Ég ætla að lifa það að aka í gegnum Vaðlaheiðagöng
því ég man er maður var að skrönglast í öllu veðri yfir
Vaðlaheiðina, það var ekki skemmtilegt.

mbl.is Bíða svars um stækkun Hvalfjarðarganga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð leið til að fara í frí.

Æ hann hefur verið orðin leiður ræfillinn,
gott fólk hefur fundið hann,
síðan ílengist hann þangað til að, jæja svo
hefur honum langað heim aftur, og þá er bara að skella
sér heim.
Hann hefur kannski haldið að hann gæti tekið upp
þráðinn á ný. Maður er kannski óttalega leiðinlegur,
hann hefur jafnvel tapað mynninu.
mbl.is Týndur í fimm ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur hugarþels.

Hafið þið ekki tekið eftir því, að sumir dagar
eru svona eins og hugurinn sé fyrir utan sjálfan sig,
og ef einhver yrðir á þig, þá hugsar þú er verið
að tala við mig, en það er ekki um neinn annan að ræða
því þið eruð bara tvö.
Svona dag er ég búin að eiga, það er svo margt sem sækir
að manni, og maður dettur inn í þetta hugarástand.
Það kemur ekki oft fyrir, að ég er ekki búin að fara í sturtu
og laga mig til, fyrr en um hádegi, og svona silaðist dagurinn áfram
í þessum dúr. Talaði við Fúsa og Sollu mína í Njarðvíkunum,
litli Sölvi Steinn fór náttúrlega að gráta er hann
heirði í ömmu sinni, vildi koma til hennar, (´öllu má nú nafn gefa
hann er 2 mán.)talaði líka við Írisi mína í Garðabænum,
síðan Dóru elstu mína á Laugum,
síðan hringdi Milla mín um sex leitið,
hún var að læra í allan dag, Ingimar var heima og fór
hann með ljósálfana mína til Ódu ömmu,
hún bauð þeim í smákökubakstur, og allt var bara gott hjá öllum.
Sit hér við tölvuna mína og horfi á glampana frá friðaljósinu
sem við kveiktum á fyrir litla drenginn í Keflavík.

Drottinn sem ræður öllum þjóðum yfir,
uppspretta lífsins, kjarni þess sem lifir,
leiddu oss gegnum lífsins böl og þrautir,
leiðbeindu oss að ganga réttar brautir.

Láttu þinn kærleikskraft oss alla styðja,
kenn oss að lifa, stríða, vaka, biðja.
Aldrei þín hjálparhöndin frá oss víki,
,,helgist þitt nafn og tilkomi þitt ríki".


Frábærir bónus menn.

Þið eruð í alvöru frábærir.
Veit ég vel að þið hafið hjálpað vel undanfarin ár,
en verð bara að tala um það í hvert skipti sem
svoleiðis gerist.
Það er mín skoðun að það sé allt of lítið talað um
það góða í kringum okkur, frekar er talað um hið neikvæða.
Veit ég vel að þið eigið eftir að halda áfram á
þessari braut, því þið eruð bara frábærir.

Ég er svo lánsöm að þurfa bara að aka í klukkutíma til
að versla við ykkur, og geri ég það á Akureyri.


mbl.is Bónus gefur 25 milljónir til hjálparstarfs innanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorg í hjarta.

Svona atburður gerist og maður verður alltaf jafn hissa,
hva! hefur umferðarmenningin ekkert breyst?
Veit ekki fólk að það á ekki að aka á meira
en 50 km. hraða í þéttbýli, sumstaðar 35.
Ég held að þetta verði alltaf svona, því miður.
Það er víst alveg sama hvað við tölum mikið um þetta,
við fáum ekki þennan yndislega dreng aftur.
Ég sendi foreldrum hans og öllu skyldfólki
hjartanlegar samúðarkveðjur og megi góður Guð
gefa þeim ljós og orku á þessum erfiðu stundum.
mbl.is „Við viljum ekki sjá annað svona slys í götunni okkar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáta.

Hvað er æðra Guði,
verra en djöfullinn,
ríkir fá ekki að eiga það,
Fátækir eiga það.
Svari þið nú.

Fyrir svefninn.

Jóhann Eyjólfsson var eitt sinn
að halda þingmálafund í Borgarnesi.
Einar Friðgeirsson prestur á Borg,kom á fundinn og mælti:
,,Hvort er, sem mér heyrist, horrollujarmur úr Norðurárdal?"
Jóhann svaraði samstundis með þessari vísu:

Víða heyrast hávær org
af hungri og sultarkvölum.
Þó er hrinið hærra á Borg
heldur en fram í dölum.

Góða nótt.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband