Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Ævintýri !!!

Þetta er alveg frábær frétt, að láta drauma sína rætast
er bara alveg yndislegt.
Þau eru að skapa hluti sem þeim finnast skemtilegir og gefandi,
og selja þá síðan á frábærum stað, sem sagt jólatívolíinu
í Köpen, það er nú ekkert jólalegra,
en að koma til Köpen fyrir jólin.
Sjáið þið gleðina sem ljómar af þessum hjónum,
þau kunna að njóta lífsins og gera það sem
gleður þau og aðra.
Gangi þeim vel í einu og öllu.

mbl.is Guðrún og Bragi selja jólaskraut í Tívolí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju.

Þetta er alveg frábært og bráðnauðsynlegt
athvarf.
Ég hefði kosið fyrir mína parta að svona
hefði verið til er ég var í vandræðum í mínu lífi.
Þegar ég byrjaði að búa, þá var aldrei talað um svona hluti
allavega ekki í kringum mig,
maður átti bara að harka alt af sér og þola alt.
ÉG hvet allar konur sem eru í vandræðum, að þora
að nota þá hjálp sem býðst, og standa með sjálfum sér
aldrei að gefast upp.
mbl.is Sigurhátíð eftir 25 ára starfstíma Kvennaathvarfsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir ósmekklegt.

Þetta er afar sorglegt, og maður fær ætíð stig
fyrir hjartað, er svona nokkuð gerist.
Það er búið að tala um það svo oft áður,
og ég segi nú bara: ,,Er ekki möguleiki að þið hættið að
birta myndir af slysstað"?
Hvað er svona mikilvægt að sýna myndir af bílunum,
má ekki bara segja frá að þetta hafi gerst.
mbl.is Þungt haldnir eftir árekstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Ein auglýsing úr sömu bók.
REYKT SÍLD.

mjög ljúffeng, kemur
bráðlega á markaðinn.

Fæst hjá Sláturfélagi Suðurlands,

Tómasi Jónssyni og víðar.

Reynið hana.

Einn brandari.
Það er bara ein aðferð til
þess að græða fé á heiðarlegan
hátt.
--Hver er hún?
--Á datt mér ekki í hug að þú
þekktir hana ekki.
Góða nótt.


Hvað er að gerast?.

Það er nefnilega ekkert að gerast,
held að það séu allir steinsofandi á þingi okkar
Íslendinga, Þingfréttir það hefur nú verið hlustað á þær
á þessu heimili, en ekki núna,
þið eruð svo hundleiðinlegir,
að maður stendur bara upp og gerir eitthvað annað.
þið talið ekki um neitt sem skiptir máli,
Hver höndin upp á móti hvor annari, í stað þess að vinna
saman að aðkallandi verkefnum, eins og öryrkja og eldri-
borgara málunum.
Af hverju þarf ætíð að draga lausn á málunum,
þar til alt er komið í óefni hjá fólki.

Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, já það hefur að mínu mati
risið upphaf frábærs samfélags, það á eftir að eflast
þetta svæði og verða samfélaginu á suðurnesjum til sóma.
Ég treysti þessum mönnum sem að þessu standa,
fullkomlega til að klára þetta verk.
Þarf endilega að vera með tortryggni út í þetta mál.
þetta gekk hratt og vel fyrir sig, er enn þá í þróunn,
og vonandi í hröðum vexti.

Er það alveg nauðsynlegt fyrir stjórnaranstöðuna,
að vera ætíð með þessa neikvæðni, því þetta er ekkert annað.


mbl.is Eðlilegt að tortryggni skapist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottur gaur.

Ja hérna, þetta verður nú til þess að
öllu öryggiskerfi verður skipt út í Hvíta húsinu,
allavega símkerfinu, einhver verður rekinn
fyrir að hafa þetta ekki í lagi,
þvílíkur darra-dans.

Að láta sér detta þetta í hug er tær snilld.


mbl.is Skagapiltur pantaði viðtal við Bush
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Cool gaur, maður.

Hann heldur að hann sé cool,
Hvað halda þeir eiginlega að þeir séu þessir gaurar
sem haga sér svona.
Í mínum huga hefur engin agað þessa stráka,
enginn kennt þeim muninn á réttu og röngu,
hafa bara fengið að vaða uppi.
Ég tala í ft. því það eru fleiri en þessi ungi maður.
Held að þeir ættu að rifja upp söguna og taka saman
hvað margir eru búnir að deyja á Grindarvíkurvegi.
Þið öll þarna úti skuluð taka til athugunnar:
,,Þá miklu sorg sem kemur upp í fjölskyldum og allri þjóðinni
við dauðsfall".

mbl.is Sautján ára á 212 kílómetra hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foreldrar ráða.

Ætlaði nú ekki að nenna að tjá mig um þetta.
Hvað er eiginlega málið? Er ekki bara hægt að hafa alla liti?
þarf að fórna tíma til að þrasa um mál
sem foreldrarnir ráða í raun sjálfir allt um,
Þarf að setja einhver lög um þetta, ég bara spyr???
Ég er nú alveg með jafnrétti kynjana,
en er ekki margt brýnna á þingi, að ræða heldur en
litaval á fæðingadeildum,
sem hvort sem er umturnast er heim er komið.
Þar ræður nefnilega barnatískan ríkjum allavega
hjá þeim sem efni hafa á.
mbl.is Aðgreining kynja með litum hófst á sjötta áratug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir svefninn.

Ég má nú til að birta ykkur Auglýsingu
sem var í Íslenskri fyndni ritur og gefin út í
Reykjavík 1935 af Gunnari Sigurðssyni frá Selalæk.

KOL--SALT--KOKS.

REYNSLA sýnir, að það borgar sig best að
kaupa kol, koks og salt hjá oss.
ÞEKKING vor á vörum þeim, er vér seljum,
er kaupendum trygging fyrir gæðum þeirra.
VISKA þeirra er mest, sem vita hvað þeir vilja.
--Komið og skoðið vörur vorar, hinar nákvæmu vogir
og hin fullkomnu afhendingartæki.
VILJI menn kaupa kol, koks og salt, þá er
einfaldasta leiðin og hin skynsamlegasta að snúa sér til vor.

H.F. KOL & SALT.
Símefni:Kolosalt.
Sími1120.
Elsta og stærsta kola og saltverslun landsins.

Er þetta ekki alveg frábær auglýsing.
Svo fáið þið eina skrýtlu úr blaði rituðu
sunnudaginn 7. ágúst 1938. það gæti heitið Breiðablik
en er ekki viss.

Faðirinn: ,, Má ég vekja eftirtekt þína á því,
að ég er faðir þinn".
Sonurinn: ,, Á það nú líka að vera mér að kenna".

Góða nótt.


HVAÐ ÞÁ!!!!!!!

Héllt ég mundi lesa að fólkið fengi bætur
núna strax, nei það gat ekki verið,
að þeir gerðust mannlegir þessir háu herrar.
Hvað er að því að láta hópinn hafa pening núna
svo að þau geti haldið jól.
Þetta er algjörlega óviðunandi ástand,
og til vansa fyrir ykkur í ríkisstjórn Íslands.
mbl.is Bætur frá TR kunna að hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband