Bloggfærslur mánaðarins, september 2012
Hugleiðing 1V
17.9.2012 | 09:54
Ein sit ég og sauma #"$%&&&&&/ nei nei ég meina hugsa það er svo gott að vera ein með sjálfum sér finna friðin með kisunum mínum sem kúra í ömmu bóli það er svo heitt og gott, nú vetrarverkin eru komin á fullt hjá öllum, skóli, ræktin, íþróttirnar og að sjálfsögðu föndrið hjá okkur mæðgum mikið finnst öllum gott er það kemst regla á alla hluti eftir sumarið þó allir séu líka fegnir er skóla líkur, en þá er það fótboltinn og bara allt mögulegt og auðvitað er þetta svo skemmtilegt að engin vill missa af neinu.
Hér á bæ er ósköp rólegt englarnir mínir farnar til Japans og gera það bara gott þarna úti í hinum stóra heimi sem þeim finnst ekkert stór, en ég hef yndislegu barnabörnin mín fjögur hér á Kópa og við Dóra erum svo heppnar að fá að hafa þau á stundum og þá er fjör í bæ nú svo tala ég nú við ljósin mín á Húsavík, fæ fréttir af hvernig þeim gengur og svoleiðis, ég get allavega ekki kvartað.
Fyrirsagnir blaðanna fara stundum fyrir brjóstið á mér eins og þessi:
" Þóra Arnórsdóttir með börnin og manninn á frumsýningu"
Væri ekki skemmtilegra að segja:
"Þóra og Svavar með börnin á frumsýningu" Nei ég bara spyr.
Svo þessi sem ég heyri oft á einni sjónvarpsstöðinni:
" Vertu heima með elskunni þinni í kvöld hún á það skilið"
Sko auðvitað eigum við konur allt gott skilið en mér finnst þessi
auglýsing asnaleg, karlar eiga líka allt gott skilið.
Englarnir mínir með nýjum vinkonum
Auðvitað var farið á MC Donalds
Fallegu englarnir mínir
Flottar þessar vinkonur
Hópur af skólafélögum, það væri nú munur ef við gætum verið í
stuttbuxum en við búum víst á Íslandi
Kærleik og frið til ykkar allra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)