Sér er nú hver vitleysan

 Já ég segi nú ekki annað ég hef nú ekki í neinu að snúast, auðvitað þarf ég að koma mér fyrir, en það er ekkert sem liggur á, kannski er spáin að meina allt vesenið sem ég lenti í fyrir helgi átti nefnilega samkvæmt bankanum ( ekki mínum banka) að borga eitthvað sem ég var löngu búin að borga, reddaði því með vel völdum orðum og út úr kerfinu hvarf sú innheimtan eins og dogg fyrir sólu. Þjónustufulltrúinn minn bað mig að athuga hjá orkufyrirtækinu sko var nefnilega að borga tvöfalda reikninga, varð frekar pirruð hringdi og  var sagt að þessu yrði kippt í lag, nú svo ég lét bara borga mína reikninga og ef það verður lokað á fólkið sem er í húsinu sem ég var í er það ekki mitt mál.

Var að fá sendan penna frá bróður mínum nú ég náði í hann á pósthúsið og borgaði 19oo kr fyrir fluttning á pennanum, Reykjavík-Húsavík sem er eðlilegt því þetta var hraðsending, haldið ekki að ég hafi fengið rukkun í heimabankann minn frá flutningsfyrirtækinu upp á rúmar 10,000 ég hringi og var svo óheppin að deginum var að ljúka og allir farnir heim svo ég á þetta eftir í dag og vona svo mikið að ég fái frið fyrir svona uppákomum sem ég á bara enga sök á.

Sporðdreki:
Það er í mörgu að snúast þessa dagana og væri
óvitlaust að skrifa tossalista svo ekkert verði nú útundan.
Þú vinnur of mikið, reyndu að finna tíma til að hvíla þig.


Tossalista, get nú ekki annað en hlegið, er búin að hafa svona tossablokk á borðinu hjá mér í mörg ár og það verður oft eitthvað útundan og það gerir bara ekkert til því ef það verður útundan þá er það ekki mikilvægt.


Hlálegt, en ég er í því að hvíla mig hef eigi heilsu í annað og er að bíða eftir að komast í þessa yndislegu aðgerð sem heldur mér gangandi.

Þannig að spáin mín passar bara ekkiWhistling
Kærleik á línuna
Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HVURSLAGS penni var þetta eiginlega sem þú fékkst sendan frá bróður þínum var hann gerður úr gullstöng?

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 09:39

2 identicon

segi það nú líka, Jónína??????? Ingó er laglega orðin loðin að vera að senda þér svona gull penna.....

milla jr (IP-tala skráð) 4.10.2010 kl. 09:46

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það mætti halda það Jónína mín og haltu þér - þeir eru að kanna málið og hringja síðar -
læt þig vita

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.10.2010 kl. 10:08

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Milla: Ingó??????????????????????????
Það var Guðni annars hefði ég ekki verið rukkuð um toll.

Er ekki munur að vera bara heima elskan
Sjáumst

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.10.2010 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband