Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Fyrir svefninn.
27.10.2007 | 21:24
Bóndi einn á suðurlandi hafði ráðið til sín vetrarmann,
sem honum líkaði prýðilega við.
Eitt sinn brá bóndi sér að heiman, en er hann kom heim aftur,
kom hann að óvörum að konu sinni og vetrarmanninum á dívan inni í stofu.
Bónda varð ókvæða við og fór á fund prests síns að ráðgast um,
hvað gera skyldi.
,, Þú verður að láta vetrarmanninn fara," segir prestur.
,, Ég má nú illa missa hann, enda líkar mér ágætlega við hann,"
svaraði bóndi. ,, Nú eða skilja við konuna," segir þá prestur.
,, Ekki vil ég það, og vandséð, að ég fái betri konu," segir bóndi.
Nú líður nokkur tími, en þá hittast þeir bóndi og ðrestur á ný,
og fer þá presturinn að spyrja hann um einkamálin.
,, Það er allt í lagi með þau," svaraði bóndi.
,, Ég seldi dívaninn."
Góða nótt.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 831878
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 20
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Staða Maríu Sigrúnar, spjótin standa á Stefáni
- Tilraundýr heilbrigðiskerfisins.
- Eru landamærin við Miðjarðarhaf?
- Of mikil ríkisútgjöld
- Bæn dagsins...Ræða Péturs.
- Allir bílar þurfa rafmagn.
- Mun Svandís sprengja ríkisstjórnina?
- Reisum bylgju Friðar með atkvæðamagni fyrir Ástþór Magnússon
- 14 ára bið Verkamannaflokksins að ljúka
- Það er matreiðzlubók
- Afmælisbörn, risalampinn og óviðeigandi tónlist
- Útsvarsgreiðendur eru lömb sem á ekki að þjónsusta
- Ágætis tilbreyting frá rás 1 & 2 :
- Frekari skýring á kvikurennsli og spá um goslok.
- Raunguræða alþýðuveldisins [- plebeijaveldið]
Athugasemdir
Hver er að segja þér þessar sögur?? heyrirðu þetta á Sölku eða Bauk?? hehe góð
Ásdís Sigurðardóttir, 27.10.2007 kl. 21:32
Alltaf gaman að lesa þessar örsögur þínar,takk fyrir.
Jensen (IP-tala skráð) 27.10.2007 kl. 22:29
Hehe einföld lausn
Ragnheiður , 28.10.2007 kl. 00:07
Huld S. Ringsted, 28.10.2007 kl. 08:06
Já takk fyrir mig, en finnst ykkur ekki snilld að lesa þessar gömlu sögur.
Ásdís mín, nei ég heyri þær ekki á Sölku eða Bauk að þeirri einföldu ástæðu að inn þangað hef ég aldrei komið, hef ekki áhuga fyrir svona stöðum
sér í lagi ekki á kvöldin, en ég á nú trúlega eftir að prófa að borða á Sölku.
þessar sögur sem ég hef verið að flytja ykkur að undanförnu eru teknar úr Íslenskri fyndni og útgáfa sú sem ég er með er frá árinu 1975.
Indriði pabbi engilsins míns átti þessa bók, enda finn ég megna tóbaks lykt er ég rita upp úr henni, mér finnst það bara notalegt.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.10.2007 kl. 09:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.