Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Fyrir svefninn.
5.12.2007 | 20:29
Ég má nú til að birta ykkur Auglýsingu
sem var í Íslenskri fyndni ritur og gefin út í
Reykjavík 1935 af Gunnari Sigurðssyni frá Selalæk.
KOL--SALT--KOKS.
REYNSLA sýnir, að það borgar sig best að
kaupa kol, koks og salt hjá oss.
ÞEKKING vor á vörum þeim, er vér seljum,
er kaupendum trygging fyrir gæðum þeirra.
VISKA þeirra er mest, sem vita hvað þeir vilja.
--Komið og skoðið vörur vorar, hinar nákvæmu vogir
og hin fullkomnu afhendingartæki.
VILJI menn kaupa kol, koks og salt, þá er
einfaldasta leiðin og hin skynsamlegasta að snúa sér til vor.
H.F. KOL & SALT.
Símefni:Kolosalt.
Sími1120.
Elsta og stærsta kola og saltverslun landsins.
Er þetta ekki alveg frábær auglýsing.
Svo fáið þið eina skrýtlu úr blaði rituðu
sunnudaginn 7. ágúst 1938. það gæti heitið Breiðablik
en er ekki viss.
Faðirinn: ,, Má ég vekja eftirtekt þína á því,
að ég er faðir þinn".
Sonurinn: ,, Á það nú líka að vera mér að kenna".
Góða nótt.
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:33 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 831931
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Fyrir kraft heilags anda
- Þrír forsetaframbjóðendanna eru með tengsl við WEF og heimsmarkmið SÞ!
- Benjamín Netanyahu og Ariel Sharon. í minningu Hind Raja
- Karlmaður sem skilgreinir sig kynlausan tapar dómsmáli
- Getum við leyft okkur hvað sem er?
- Samfylkingin svíkur lit, vill opin landamæri
- Fyrirsætinn FRANCISCO HENRIQUES sýnir casual karlmannaklæðnað
- Í tilefni af HVÍTASUNNUDEGINUM sem að er í dag: Gæti HEILAGUR ANDI birst fólki í nútímanum með einhverjum hætti?
- bæn dagsins...Pétur og Jóhannes fyrir ráðinu
- Gandreiðin og rólegheitin
- Rétt fyrir kosningar, að kyssa sauðkindina á munninn...
- Fundarlaun
- Saga class í strætó og matarkyns morðtilræði
- Miðaldra fúla konan
- Erfiðasta viðfangsefnið, ástand jarðskorpunnar?
Athugasemdir
Auglýsingin góð en brandarinn frábær!
Góða nótt Milla mín
Huld S. Ringsted, 5.12.2007 kl. 20:52
Hahahaha góður...
Amma sagði oft við mig þegar ég var óþekk : Ertu alveg kol og salt ?
Ragnheiður , 5.12.2007 kl. 22:14
Húmorinn í lagi hjá henni ömmu þinni,
en sjáðu til, kol og salt var ofarlega í hugsun
fólks á þessum tíma. Fjölskylda mín átti fyrirtæki við hliðina á kol og sallt, á ég margar minningar
af svæðinu þar sem nú stendur Seðlabankinn.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.12.2007 kl. 08:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.