Fyrir svefninn.

Prestur nokkur á Munkaþverá tók eitt sinn til bæna
á stólnum sjúka vinnukonu sína á pálmasunnudag
með þessum orðum:
,,Nú er langt síðan að þú, blessaður herrann,
  reiðst einni ösnu inn í Jerúsalem.
Taktu nú þessa þína voluðu ösnu, Kristínu Ketilsdóttur,
sem hér liggur dauðveik inni í bænum,
og ríddu henni inn í þá himnesku Jerúsalem".

 

                             Þingvísa.

                                   Þeir sem eiga á þingi sess
                                   og þurfa að éta,
                                   verða að beigjast eins og S
                                   en ekki Z.
                                                      Eiríkur Einarsson frá Hæli.

                                                                          Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ja, hérna margt kemur sniðugt frá þér mín kæra.  Kveðja norður

Ásdís Sigurðardóttir, 23.1.2008 kl. 21:37

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Dónalegur prestur Góða nótt Milla mín

Huld S. Ringsted, 23.1.2008 kl. 22:00

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Heyrðu var hann skildur Gesti frá Hæli þessi Eiríkur?

Ég heiti Gestur og er frá Hæli

Éti þér skít og veri þér sælir.

Ía Jóhannsdóttir, 23.1.2008 kl. 22:41

4 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Alger tuddi þessi klerkur. Mamma hefði sagt 'þetta getur ekki verið satt'.

Milla mín, ég er toguð og teygð annan hvorn dag, þetta er allt í áttina.

Góða nótt  

Eva Benjamínsdóttir, 24.1.2008 kl. 01:55

5 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Hefur greinilega verið skemmtilegur prestur, maður með húmor.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 24.1.2008 kl. 09:26

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásdís, allt sem ég blogga undir heitinu fyrir svefninn, tek ég upp úr
bókunum Íslensk fyndni. Vildi að ég gæti sagt svona sögur.
Ekki veit ég hvort hann var skyldur Gesti frá Hæli Ía, en trúlega.
Presturinn var allavega frekar ósmekklegur í orðavali, en þeir þóttu nú
skemmtilegri þeir orðaleiknu.
Eva heldur þú að mamma þín hefði sagt að þetta gæti ekki verið satt,
held hún hafi alveg vitað hvernig þeir voru sumir prestar, amma mín hefði örugglega brosað í kampinn.
Takk öll fyrir innleggin. Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.1.2008 kl. 09:57

7 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Milla mín, ef eitthvað óheyrilegt eða gróft kom til tals þá kom siðavendnin upp með þessum hætti, soldið sætt. Hún hafði húmor en þegar henni ofbauð tók hún svona til orða. Hún vissi vel hvað klukkan sló, enda margar ótrúlegar sögur einmitt sagðar um presta. Ég sá hana bara alveg fyrir mér.

Eva Benjamínsdóttir, 24.1.2008 kl. 16:19

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sætt að þú skildir sjá hana fyrir sér, amma sló sér líka á lær og sagði Ja hérna, en mamma setti ætíð upp vandlætingasvip,
hún hafði ekki húmor.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.1.2008 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.