þetta er bráðsmitandi fjandi.

Þetta er ekki gott ástand, það sem ber að varast.
Ekki að sofa saman, ekki að kyssast, sótthreinsa ber W.C.
og sprittbera hendur eftir þvott, vera með grímu,Ninja
en svo er það ekki nóg því þessi fjandi er loftsmitandi,
getur því borist í matinn sem við erum að láta ofan í okkur.
Þannig að ef einhver veikist á heimili,þá er annað hvort
að henda honum á sjúkrahús, eða fara sjálfur út.Shocking
                    Góðar stundir.


mbl.is Nóróveiran leggur Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heidi Strand

Það er ekki ástæðulaust að sumir þjóðir heilsar ekki með handabandi.
Í Japan til dæmis fær maður alltaf blautservíettu með þegar keypt er til dæmis skyndibíta.
Nú er löngu hætt að láta flugfarþega fá blautservíettu með matnum vegna þess að fáir notuðu hann.

Heidi Strand, 29.1.2008 kl. 10:02

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú segir nokkuð Milla mín. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2008 kl. 10:19

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já það er vandlifað í þessum heimi

Ía Jóhannsdóttir, 29.1.2008 kl. 10:32

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já það er vandlifað, en okkur ber að fara gætilega, sumir eru til dæmis afar hissa á því að ég skuli hafa handaspritt í eldhúsi og vaskahúsi,
síðan er ég ætíð með blautservéttur á baðinu og þegar ég er að ferðast.
T.d. nota ég handspritt á borðin hjá mér ef ég er búin að vera að hantéra kjúkling, maður veit aldrei hvað getur leynst í þessum kjúllum.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2008 kl. 10:47

5 Smámynd: Heidi Strand

Eldhúsbekkur, áhöld og skítugar borðtuskur geta verið bakteríubombur.

Móður mín var mjög þrifin og alltaf að skúra og þvo, en við fengum allar pestir.

Á beint á móti okkur bjó fjölskylda sem skúraði næstum því aldrei og uppvaskið safnaðist gjarna upp og þar var aldrei veikindi.

Heidi Strand, 29.1.2008 kl. 11:11

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Heidi mín það er hægt að þrífa of mikið, ég er ekki alveg svo slæm,
ég man að ég leifði börnunum mínum bara að maula á sandi ef þau vildu
það, en drullugar borðtuskur eru ólýðandi, og þvottapokarnir
fara í óhreint eftir eina notkun, annars er ég alveg hætt að nota þvottapoka, nema á börnin er þau eru kámug.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2008 kl. 12:42

7 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Það er að minnsta kosti nauðsynlegt að þvo sér vel og gæta fyllstu varúðar fyrir uppskurð á Spítala. Ég hef fengið þrálátar sýkingar þar. Ein slík og kvalarfull entist í níu mánuði. Svo er það góði málshátturinn: Af misjöfnu þrífast börnin best.

Ég blæs frá mér rikið, þá fer það eitthvað annað í bili. Baka aldrei nema eldúsgólfið sé skínandi hreint. Nota ekki svampa síklahýsa. Er frekar umburðarlynd gagnvart þrifum en passa að hafa eldhús og bað alltaf spik and span. Og lúri ekki á óhreinum borðtuskum. Svo er allt í drasli. Elska að koma inn á snyrtileg heimili: Tilbreyting. eva

Eva Benjamínsdóttir, 29.1.2008 kl. 13:24

8 Smámynd: Huld S. Ringsted

Er ekki bara best að fara í einangrun! ég hef nefnilega ekki áhuga á svona pest

Huld S. Ringsted, 29.1.2008 kl. 14:00

9 Smámynd: Sævar Einarsson

Það sem ekki drepur mann, herðir mann, þetta sagði hann afi minn alltaf. Svo er hollt að fá svona pestir, þetta hreinsar og styrkir ofnæmiskerfið, en vissulega er þetta óþægilegt.

Sævar Einarsson, 29.1.2008 kl. 15:22

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Best að fara í einangrun, filla allt af mat og loka sig inni,
bara verst að þetta er að ganga allt árið eða eitthvað álíka

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2008 kl. 15:23

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

það getur líka verið óþægilegt að koma inn á snyrtileg heimili
maður hefur það á tilfinningunni að maður megi hvergi bera niður.
Eva mín ég kalla það nú ekki drasl þó það sé drasl eins og þú kallar það út um allt. það er bara heimilislegt.
Einn góður. Fengum okkur nýtt rúm,  með  sjúkradýnum sem aðlaga sig eftir líkamanum svona alvöru með rafmagni, nú áður en rúmið kom
þá var öllu hent út herbergið málað og fíneserað og gerðu þau þetta Ingimar minn og Milla Jr. Svo leið og beið alltaf vorum við að hæla rúminu. Allir búnir að prófa rúmið að við héldum, þá sagði Milla jr.
Ingimar er ekki búin að prófa og ég  af hverju ekki alveg hissa.
Jú það var að því að það var alltaf svo "vel búið" um það.
ég dreif þau bæði að prófa, aldrei komið í betra rúm
                                Kveðja frænka mínMilla.




Sævarinn þetta er rétt hjá afa þínum, þess vegna var ég ekkert að pæla í því er börnin mín átu sand.
Þetta er sérlega óþægilegt fyrir gamalt fólk já og bara marga,
ég er til dæmis með gangráð og er það afar óþægilegt fyrir mig að fá svona pest, sér í lagi uppköst, en þetta gengur allt yfir.

      Takk fyrir innlitið.
 

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2008 kl. 15:47

12 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góður, en við getum ekki flutt neitt því þetta er loftsmitandi
Verðum að taka þessu létt mín kæra.
                           Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2008 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband