Fyrir svefninn.

Brynjólfur Kúld var gáfumaður, en ofdrykkjumaður
seinni hluta ævinnar.
Þegar hann var á túr, smakkaði hann stundum ekki
mat dögum og jafnvel vikum saman.
Einu sinni náði kunningi hans honum inn til sín og rak
hann til borðs með sér.
Þegar Brynjólfur var farinn að borða, segir hann:
,, Andskoti skal það nú annars gera manni gott að
smakka mat, svona einstöku sinnum."

              Í Hnappadal.

       
Hnappadal ég horfi á
        hann mér arma rétti.
        Þar ég heimasætur sá
        sex á einu bretti.

            Kveðið um kunningjana

        Þú hefur illa ekkert gert
        öðlast hylli að vonum,
        sízt mun spilla að þú ert
        einn af snillingonum.

                               Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

he, he alltaf gaman að þér   GN mín kæra

Ásdís Sigurðardóttir, 19.5.2008 kl. 21:41

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Bestu kveðjur norður yfir heiðar til þín Milla mín

Sigrún Jónsdóttir, 19.5.2008 kl. 21:46

3 identicon

Hæ Milla mín. Takk fyrir bloggið þitt. Jón Hrafn hennar Lindu er sonur Kalla Antons og Hrafnhildar úr Keflavík. Kalli er bróðir Eygló Antons hans Óla Arthúrs!! Smá ættarsaga fyrir svefninn ha ha.

Góða nótt.

Silla. (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 21:46

4 Smámynd: Erna

Góða nótt frú Milla og takk fyrir mig

Erna, 19.5.2008 kl. 21:48

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég man eftir þessu ættarnafni hérna á Akureyri, Kúld, voru alltaf kallaðir "Kúldararnir"

Góða nótt Milla mín

Huld S. Ringsted, 19.5.2008 kl. 21:55

6 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Góða nótt og innilegar þakkir fyrir fallegar kveðjur.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 19.5.2008 kl. 22:30

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn Þórkötlur allar, komnar í vinnu eða á leið í vinnu geri ég ráð fyrir.
Silla mín takk fyrir ættarsöguna, Dóru minnti að hann væri af suðurnesjum því þau hefðu alltaf þekkst.

Já Kúld þeir hafa fengið á sig kúldararnir, sökum þess að þeir hafa kúldrast ætíð í einhverju.

Erna hættu að kalla mig frú Millu, það er svo gamalt skjóðan þín.

Takk allar fyrir innlitin kæru vinurGuys.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.5.2008 kl. 08:43

8 Smámynd: Erna

 

Erna, 20.5.2008 kl. 08:59

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú ert algjör grínisti

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.5.2008 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband