Fyrir svefninn.


9icoij.jpg
Hér sjáið þið alveg yndislega norðurljósamynd, ekki get ég
nú alveg séð hvar hún er tekin.

                                                          

Þetta er hann litli frændi minn sem kom í heiminn fyrir nokkrum
dögum síðan og þurfti í smá aðgerð, en er nú bara alveg tilbúin
að fara heim með mömmu og pabba.
hákon

mail_googlesonur_la.jpg


Og þarna er ég sko vel vakandi, Millu frænku langar til að
taka hann og knúsíknús, velkomin til okkar elsku frændi.
Hann er sonur Hrannar frænku minnar og Óla Gísla mansins hennar.

Hrönn er dóttir Ingólfs bróðir míns og Ingu konu hans og hefur ætíð
verið mikill samgangur hjá okkur og þykir mér undur vænt um þessar
frænkur mínar, þau eiga fjórar stelpur.
Ástu sem á fjögur börn og býr í Danmörku, Hrönn sem á þennan litla og
einn 4 ára, Stefaníu sem á tvær stelpur og svo er það litla stelpan hún
Jórunn mín þessi elska býr einnig í Danmörku þau eru bæði í námi þar.
Þau mega ekkert vera að því strax að eignast börn.


mail_googlekarensif.jpg

sara_mar_a_752315.jpg

Þetta eru dætur Stefaníu, Karen Sif og Sara María.

                 Mánasigling.

           Mjöllin um miðnættið tindrar
           og máninn er kominn hátt.
           Á silfurfleyinu sínu
           hann siglir í vesturátt.

           Á lognöldum ljósrar nætur
           hann líður um höfin sín,
           unz loksins hann út í blámann
           og bliknar, er morgunn skín.

           Og munardraumarnir mínir
           með honum taka far.
           Þeir sigla á silfurfleyi,
           er sekkur í dagsins mar.

                            Magnús Ásgeirsson.


Góða nótt.
HeartSleepingHeart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góða nótt milla mín og fallegt frændfólk

Hættþþ (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 21:31

2 identicon

Frábær mynd og til hamingju með alla þessa "gullmola" þína Milla.  Eigðu góða nótt.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 22:07

3 Smámynd: Heidi Strand

Til hamingju!

Heidi Strand, 17.12.2008 kl. 22:19

4 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Flott mynd af norðurljósunumFlotar myndir af börnunum Og flottar myndir af prinsessunumKnús Milla mín er að skríða saman ,ég er búin að grípa allt sem hefur gengiðÓla  gamlan hehe

Ólöf Karlsdóttir, 18.12.2008 kl. 00:07

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Falleg börn  Góða nótt Milla mín

Sigrún Jónsdóttir, 18.12.2008 kl. 00:36

6 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ef það er eitthvað sem ég sakna frá heimalandinu þá eru það norðurljósin.  Ég fékk næstum tár í augun þegar ég sá þessa mynd.  Hef oftsinnis útlistað fyrir mínum vinum hér um undur norðurljósa dansandi um himinhvolfið heima á Íslandi. 

Takk fyrir þetta vinkona. 

Ía Jóhannsdóttir, 18.12.2008 kl. 00:45

7 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Góðan og blessaðan daginn elsku vinkona

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 18.12.2008 kl. 07:25

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn kæru vinir, takk fyrir kommentin hjá mér mátti bara til með að setja þessar myndir inn, nú fer ég að gera þetta oftar því ég er komin með græjur til þess.

Ljós í daginn ykkar
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.12.2008 kl. 08:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband