Fyrir svefninn.

Aldrei komst ég í stuð til að leggja mig enda bara allt
í lagi því ég er svo hress eins og allir vita.

Seinnipartinn kom Milla með stóra ljósið mitt og hún
bankaði í gluggann hjá ömmu ég opnaði dyrnar og
eitthvað var nú að því hún var í því að faðma okkur, afi
lagði sig þessi elska þreyttur eftir daginn, eigi undarlegt
hafandi vakað síðan 5.30 í morgunn.

Nú við tókum saman einn tölvuleik meira segja ég gat hann
svo léttur var leikurinn, eitthvað var að svo ég spurði hvort við
ættum að koma að spila og fá okkur að drekka, já gerum það.

Mamma hennar hringdi síðan um sexleitið og þá kom skýringin
hún hafði verið smá óþekk í sambandi við skíðin, en þar þarf að
hlýða. Ég spurði svo og fékk svör svo grét hún svolítið og vildi
til mömmu afi ók henni um leið og hann fór að sækja mæðgur
fram í Lauga.

Svo vona ég að allir passi vel upp á sig í þessu óveðri sem geisa
á yfir landið okkar eina ferðina enn.
Verið heima hjá ykkur nema þeir sem verða að yfirgefa húsin sín
vegna snjóflóðahættu.

Góða nótt svona er þið farið að sofaHeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Góðar kveðjur heim í vetrarhríðina og njótið helgarinnar Milla mín.

Ía Jóhannsdóttir, 13.3.2009 kl. 20:15

2 identicon

Það er komið skítaveður hér líka. Annars góðar kveðjur til ykkar og hafið það gott. Góða nótt öllsömul.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 20:29

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sömuleiðis Ía mín það er bara gott að kúra saman og svo er stjanað við okkur er það ekki?
Ljós til þín og þinna
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.3.2009 kl. 21:17

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Einar minn það er ekki skollið á hjá okkur það kemur síðar hingað nema að við sleppum eins og svo oft lendum einhvernvegin á milli veðra.
Sömuleiðis góða nótt í Mosó vona að litla ljónið hafi ekki haft vont að því að fara smá á leikskólann.
Milla og allt settið.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.3.2009 kl. 21:20

5 Smámynd: egvania

Halló Milla mín hjá mér er gott veður ég var í hitting á Akureyri í dag og þar var líka hið besta veður.

Ljúfust

egvania, 14.3.2009 kl. 00:25

6 Smámynd: Guðrún Jónína Eiríksdóttir

Já er snjór?? Og ömmubörnin snúa okkur í kring um sig.. Kvitt og knús  úr snjónum og flensunni á Kópaskerinu.

Guðrún Jónína Eiríksdóttir, 14.3.2009 kl. 00:32

7 Smámynd: Anna Guðný

Rjómablíða á Akureyri í augnablikinu. Var úti áðan að sækja unglinginn á ball.

Hafðu það gott um helgina Milla min

Anna Guðný , 14.3.2009 kl. 01:10

8 Smámynd: Helga skjol

Helga skjol, 14.3.2009 kl. 08:51

9 Smámynd: Auður Proppé

Það var víst svaka veður hér í nótt en ég svaf það af mér.  Knús í daginn þinn

Auður Proppé, 14.3.2009 kl. 10:47

10 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Sæl Milla mín,  já það er munur á veðri hér á Íslandi en á Kanarí he he,  enn alltaf er ljúft að koma heim í draslið sitt

Erna Friðriksdóttir, 14.3.2009 kl. 12:01

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Erna mín velkomin heim elskan, var ekki alveg æði þarna úti, hef heyrt það. Því miður hef ég aldrei farið svona ferðir þoli ekki sól.
Knús í helgina þína Erna mín.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.3.2009 kl. 12:40

12 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Auður mín það varð held ég ekkert eins slæmt veður hér eins og spáð var, var að vakna í alla nótt með hlustaverk, sofnaði svo undir morgun og svaf til tíu þá kom stóra ljósið upp í til ömmu og knúsaði hana.
Ljós í þinn dag elskan
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.3.2009 kl. 12:42

13 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ljós í daginn þinn Helga mín

Anna Guðný mín við höfum bara sloppið við veðrið, eins og svo oft.

Knús til þín
Milla.

Var aukahittingur Ásgerður mín eða annað fólk, en æðislegt.
Ljós til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.3.2009 kl. 12:45

14 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Vallý mín þú slappst ekki við óveðrið, þau eru slæm þessi fjandans óveður.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.3.2009 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.