Er að fara í sumarfrí.

Við erum að fara í frí, förum suður í fyrramálið og í bústað
fyrir austan fjall eins og sagt var hér áður og fyrr.
Néró þessi elska er kominn til eiganda sinna á meðan, en
þær fengu leifi til að hafa hann þessa daga þó þetta sé
hótel á sumrin, það fer nú ekkert fyrir honum knúsidúlluni.

Nú svo förum við í Njarðvíkurnar um aðra helgi og verðum hjá
gullmolunum mínum þar, og munum heimsækja fólk sem við
þekkjum þar útfrá, hlakka svo til.

En hér koma nokkrar myndir í viðbót við þær sem komu í morgunn

img_7651stiginn.jpg

Þar sem veislan var haldin.

img_7670kve_ja_vi_bilinn.jpg

Eru að fara á Hótelið og veifa bæ bæ.

img_7678ingo_bro_ir_876647.jpg

Ingó bróðir þetta er sko Rols sem hann er í.

img_7679_a_lei_a_hoteli.jpg

Á leið á hótelið.

img_7681gu_ni_og_inga.jpg

Guðni bróðir og Inga mágkona mín.

Elskurnar mínar hafið það æðislegt næstu 12 daganna þá kem ég
vonandi aftur og get farið að gefa ykkur góða daga, en sjáið um
það á meðan.
Kærleik til allra
Milla
Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna

Takk fyrir samverustundina í dag Milla mín og góða ferð

Vonandi eltir góða veðrið ykkur á röndum í ferðinni ykkar, svo ekki gleyma að taka sundkútana og sólarvörnina með

Erna, 9.7.2009 kl. 19:52

2 identicon

Glæsileg brúðhjón og umgjörðin í kringum brúðkaupið. Gaman að því að sjá svona aðra siði í kringum þessa athöfn.

Knús og kveðjur og góða ferð í sumarfríið.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 20:13

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk elskan fyrir að minna mig á kútana, en sólarvörnin er komin niður, hann sér sko um það þessi rauðbirkni.
Knús til þín ljúfust
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.7.2009 kl. 21:31

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já hann bróðir minn Ingó sem fór út sagði þetta hafa verið ótrúleg upplifun.
Og þau eru falleg þessar elskur.
Kærleik til þín Jónína mín, hver veit nema að ég droppi í kaffi til þín.
Ég er svo frísk og frábær að ég veit að ég get það.
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.7.2009 kl. 21:33

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þetta hefur verið rosalega flott brúðkaup

Sigrún Jónsdóttir, 9.7.2009 kl. 22:33

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Knús til þín Sigrún mín og hafðu það gott alla tíð
Kærleiks kveðjur
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 10.7.2009 kl. 06:20

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Njóttu þess að vera til. Ef til vill sjáumst við fyrir sunnan hver veit.

Ía Jóhannsdóttir, 11.7.2009 kl. 11:00

8 identicon

Þú ert velkomin í kaffi til mín hvenær sem er Milla mín. Njóttu þess að vera komin í frí.

Ljós til þín hvar sem þú ert.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 11.7.2009 kl. 11:57

9 identicon

Halló Milla ég er á bloggvinaflakki ég vona að þú njótir ferðarinnar suður og lítir á þær vinkonur í Reykjanesbæ.

Milla ef þú hefur tíma fyrir þær þá mundu " ekki setja á þig ilmvatn " kær kveðja til Gísla. 

egvania (IP-tala skráð) 11.7.2009 kl. 12:43

10 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Knús og kossar og ljúfur faðmur....:O)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.7.2009 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband