Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Góðar minningar.
4.8.2009 | 21:01
Sem betur fer eigum við flest góðar minningar frá barnæsku, stundum er ég ekki næ tökum á að tala við verkina mína þá fer ég að hugsa um eitthvað sem gerðist í æsku það er afar ljúft.
Einu sinni fórum við í jólaboð til vinafólks mömmu og pabba, minnir að það hafi verið á Flókagötunni,
það var gott veður snjór yfir öllu og ekkert útlit fyrir ófærð.
Við vorum allan daginn, það var spilað og borðað, er við ætluðum heim var komið frekar vont veður fórum samt af stað heim, vorum á fólksbíl og fórum oft útaf á suðurlandsbrautinni komumst fyrir rest inn í Nökkvavog til ömmu og afa, bjuggum þar einn vetur. Amma og afi voru að farast úr áhyggjum, við ísköld, hrakin, svöng og þyrst.
þegar vorum við háttuð og komin undir sængur og teppi kom afi með koníaksflösku og öll urðum við að drekka eina matskeið af þessum fjanda, en sofnuðum eins og englar og sváfum alla nóttina.
Þó þetta hafi verið erfitt þá var þetta mjög spennandi, sjáið til þetta hefur verið í kringum 1953-4
Þetta eru elsku amma mín og afi Jón og Jórunn þau voru klettarnir
í mínu lífi, ég elska ykkur og takk fyrir mig.
Ljós á línuna.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 831872
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- 15 mínútna borgir í Kanada - tilraun hafin á eyjarklasa og QR kóða og skilríkja krafist ef yfirgefa þarf eyjarnar!
- Murder hobo
- Fyrir þá sem málið varðar - ivermectin - flett upp á ""cancer of the lymph nodes" - WEBAug 3, 2021 · IVM has been safely used in 3.7 billion doses since 1987,
- Ástæða til upprifjunar
- Fyrir þá sem málið varðar - ivermectin - flett upp á ""cancer of the lymph nodes"
- Fjölmiðlar, fósturvísamálið & börnin
- Skammsýni í breytingum í Danmörku, lýðfræðilegar breytingar munu óhjákvæmilega þurrka alla femínista út úr sögunni, þótt það muni gerast of seint fyrir okkur sem fylgjumst með helstefnunni
- Hefur staða Höllu Hrundar breyst á síðasta sólarhring ?
- Óáhugaverðar kappræður - en línur eru að skýrast
- Brýtur Smáraskóli í Kópavogi á börnum?
- Varað við villukenningum
- Bæn dagsins...Gjöf heilags anda.
- Hvern ég styð
- Kappræður?
- Línur skýrast eftir kappræður.
Nýjustu albúmin
Eldri færslur
2023
2021
2020
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Af mbl.is
Erlent
- Fleiri tugir látnir eftir óveður í Brasilíu
- Selenskí á lista yfir eftirlýsta glæpamenn
- Þingkonu byrluð ólyfjan og hún beitt ofbeldi
- Lokuðu inngangi að Trinity-háskólanum
- Þrjú lík fundust í leit að ferðamönnunum
- Einn látinn eftir skotárás í París
- Umfangsmiklar njósnir Rússa afhjúpaðar í Noregi
- Eitt bílastæði til sölu á 74 milljónir
- Danir breyta lögum um þungunarrof
- Tyrkir stöðva viðskipti við Ísrael
- 20 fórust í rútuslysi í Pakistan
- Mótmælt við stærsta háskóla Mexíkó
- Átta særðir eftir loftárás Ísraela
- Hákarl á hjólreiðastíg: Hvaðan í ósköpunum kom hann
- Leigubílstjórar í London kæra Uber
Athugasemdir
Það er gott að vera í Nökkvavoginum, þar hef ég búið í meira en 20 ára og það er sko ekkert fararsnið á mér. Ólst upp í Ferjuvoginum og er því með eindæmum átthagatrygg.
Helga Magnúsdóttir, 4.8.2009 kl. 21:31
Yndislegt Milla mín og þetta hafa verið góðar manneskjur amma þín og afi .Enda ert þú greinilega með elskusemina í blóðinu.Kær kveðja:)
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 4.8.2009 kl. 23:22
Helga mín, amma og afi bjuggu að Nökkvavog 27 og þar var alltaf fjör og mikið um að vera. Svo var nú ekki amalegt að stelast niður í röraport og leika sér þar, var röraverksmiðjan til er þú varst að alast upp?
Knús í daginn þinn
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.8.2009 kl. 08:32
Ragna mín þau voru yndisleg, ákveðin, en elskuðu okkur öll, einnig þá sem minna máttu sín eins og það er kallað í dag, Var ekki þá, en þau voru vel efnuð sem kallað var.
Knús í daginn þinn
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.8.2009 kl. 08:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.