Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Fyrir svefninn.

Þeir fóru í berjamó í dag engillinn og tengdasonur minn elskulegur,
á sjálfsögðu út á Tjörnes og fengu helmingi meira af berjum
í dag heldur en í gær, svo það eru komnir 8 l. af berjum.
Mun sulta úr því á þriðjudaginn, því við erum að fara til Akureyrar
eldsnemma í fyrramálið, Gísli er að fara í einhverja ómskoðun.
Dóra mín mun fara með okkur, og eitthvað verður útréttað.
Biðja ykkur um að lesa pistilinn um laxerolíu og nytsemi hennar
hér á undan, hann er góður fyrir alla að vita.

             Að halda við hagmælskunni.

             Arfleifð megum aldrei týna,
             enda sést á vorum þingum
             að það að láta ljós sitt skína
             líkar flestum hagyrðingum.

             Slæmar horfur.

             Dregur að elli, dofnar sex,
             dapurt er það að vita.
             Andinn rýrnar, ekkert vex
             annað en miðjufita.

Þessar eru eftir hana Ósk.


                              Góða nóttSleeping við heyrumst annað kvöld.Heart
              


Laxerolía og nytsemi hennar.

Ekki er hægt að kynna sér alþýðuheilsufræði í mörg ár án
þess að fá áhuga fyrir laxerolíu vegna þess, hve margvíslega
lækningahæfileika hún hefur.
Þá á ég ekki við hin gamalkunnu innvortis áhrif sem allir þekkja,
heldur útvortis, á húðina og vefina undir henni.
Notkunarvenjur laxerolíunnar eru þessar.

Við vörtum er hún borin á og nudduð vel inn,
eftir nokkrar vikur er vartan horfin og það sama gildir um fæðingarbletti.

Hún er afbragðs góð á geirvörtur kvenna sem eru með barn á brjósti,
einnig á nafla ungbarna ef hann grær seint.

Á útvortis æxli, og ef auga er rautt og aumt er gott að láta leka einn dropa
í það.

Ef hárvöxtur er lítill á börnum er það heillaráð að bera olíuna í hárið
tvisvar í viku, alllangan tíma.
Á augabrúnir og augnhár þrisvar í viku fyrir svefn, gerir gæfumun,
það sama gildir um hár fullorðinna.

laxerolía er einnig góð á sár, skurði, skeinur og frábær tilmýkingar
gyllinæð.

þreyttar fætur heillaráð að nudda vel af olíunni inn í fætur og sofa
síðan í háum sokkum sem ekki halda að fótum og leggjum.
Hún mýkir líka líkþorn.

Er ég var yngri þá þjáðist ég af miklum handaþurrki sem orsakaði
sprungur og skurði, ég bar á mig olíuna og setti upp bómullarhanska
og svaf svona, ég veit þetta er ekki sexí en það er heldur ekki sexí
að vera með blæðandi sár á höndum og fótum.

Þegar Dóra mín var lítil þá var hennar hár hrikalega þunnt og lengi
að vaxa, tók mig til einn daginn og nærri snoðaði litlu stelpuna mína
bar svo í hana olíuna, hún fékk afar fallegt og þykkt hár og er með
það enn þá. laxerolían var ætíð til á mínu heimili, því hún er allra
meina bót, SKO, útvortis.

Ég hef sannfærst meir og meir um gildi notkunar olíu yfirhöfuð,
umhugsunarefni er að alþýðuheilsufræðin er sprottin upp úr
gnægð tiltækra varna og lækningameðala sem náttúran hefur upp
á að bjóða. Olíur eru í jurtum hvar sem litið er.
Ef við áttum okkur á því að náttúran er alvitur,
þurfum við eigi að spyrja okkur sjálf, hvort þetta eða hitt komi að gagni.
Náttúran sér fyrir því.
                                       Gangi ykkur vel.

                                            


Árla á sunnudagsmorgni, þvílíkur friður.

Sporðdreki: Þú getur ekki verið öllu fólki allt.
Veittu það sem þú vilt veita og getur veitt.
Gefðu það sem þú vilt sjálfur fá, það sem þú
telur stórkostleg og öðrum finnst það líka
.

Er ég settist að morgunverði  5.30 í morgunn og horfði út um
gluggann og leit yfir Skjálfandann yfir í Kinnafjöllin sem sólin
var sífellt að verða bjartari yfir, fann ég hinn innri frið, fylltist
krafti og eldmóð, ekki í fyrsta skiptið, krafturinn og dulúðin yfir
þessum fjöllum er engu lík, þú getur horft á þau tímunum saman
og þau eru aldrei eins, enda tel ég að þarna búi allt það sem í
náttúrunni býr sem við aldrei augum lítum, eða þannig
.

Svo opnar maður blöðin síðan í gær, jú og les og les, þar til síðan
kemur með ruglinu.
Hvernig í ósköpunum er hægt að framhalda öllu þessu rugli.
Af hverju heyrðum við aldrei línu Ólafs áður, fyrst núna erum við
til dæmis að heyra að hann hafi viljað bíða með að kaupa gömlu húsin,
að hann hafi boðið að Magnús Þór yrði aðstoðarmaður hans líka,
skildi hann líka hafa boðið að tala við fólk og meðstjórnendur áður
en hann réðst í að reka og ráða fólk jafnframt því að framkvæma upp
á sínar eigin spýtur.

Björn Ingi snýr ekki aftur, bauðst honum það? það hefði nú verið
hápunkturinn, ég meina það eru engin takmörk?
Eitthvað eru þeir í vandræðum í framsókn þurfa aftur í 4 sæti til að fá
hugsanlega, einhvern á bak við Óskar, það gengur eigi betur en síðast
er Margrét neitaði að bakka upp Ólaf og er ég eigi undrandi á því.

Jakob og Gunnar Smári halda áfram, það er nú kannski eins gott þá þarf
ekki að borga  þeim biðlaun ofan á öll önnur útgjöld varðandi mesta endemis
rugl sem uppi hefur verið.

Eitt en nefni ég hér sem að mínu mati er stór blettur á okkar þjóðfélagi,
lygin og aftur lygin, allir segja eitthvað slæmt um hvort annað,
getur aldrei neinn axlað sína eigin ábyrgð og komið fram og sagt
sannleikann, nei því öllu þessu fólki er stjórnað eins og strengjabrúðum.
Það er kannski bara ekki búið að fatta það enn.


Dagur að kvöldi kominn.

Nú en dagurinn í dag er búin að vera afar góður, við fórum í búðina
að ná okkur í grænmeti, er ég steig út úr bílnum kom hlaupandi
litið ljós, í bleikum ballettkjól, vafði handleggjunum um hálsinn á ömmu
sinni og sagði amma mín, Hún var með pabba og voru þau að sækja
mömmu sem hafði skroppið aðeins í vinnu, þeir töluðu aðeins saman
karlar og ákváðu að fara í berjamó eftir leikinn.
Það gekk nú ekki svo vel er til kom, þau voru ekki orðin nógu þroskuð,
en þeir ætla að fara annað á morgun og athuga annað svæði.

Núna er engillinn minn að hreinsa þau ber sem hann kom með.

Nú við vorum síðan í mat hjá þeim, fengum við ferskt kjúklinga salat
með mangó og sýrðum rjóma bl. saman og speltbrauð með, ÆÐI.





Er hún ekki yndislega falleg þessi mynd, þær eru að vaða í
Reykjadalsánni englarnir mínir, en eins og þið sjáið þá er
landsslagið dýrðlega fallegt.
Svona er allt hér norðan heiða
Wink



100 5878 


Þetta er mynd af berjunum sem þeir áttu að tína, en eins og þið sjáið þá eru
þau ekki nægilega þroskuð, en falleg eru þau.







100 5868

Það er nú ætíð sama sagan með ljóskurnar þær muna aldrei neitt,
og hér kann é ekki að hækka upp myndirnar, svo þetta verður bara að vera svona.

Vitið þið að laxerolía er allra meina bót, en meira um það seinna.

Nú fer að koma að smalamennsku, svo þessi eftir hana Ósk er við hæfi.

             Göngur og réttir
           
             Heima er farið til fjalla
             í fyrstu þeir glaðir spjalla
             það ergir margt geð
             að eltast við féð
             þá fer nú að fara um kalla.

             Við pyttluna piltarnir daðra
             þá prúðmennið verður sem naðra
             en kindunum tveim
             koma þeir heim
             og kæra svo hverjir aðra.

                               Góða nótt
.Sleeping






















Ekki hafa áhyggjur segir stjörnuspáin.

Stjörnuspáin mín í dag er stórfurðuleg, ef ekki bara
tilætlunarsöm, hvernig er hægt að ætlast til að ég
sætti mig við minna, en meira en allir geta.
Skil það nú bara eigi.
Hérna sjáið þið stjörnuspánna, og dæmið nú.

SporðdrekiSporðdreki: Skrýtnar spurningar velkjast um í huga þínum,
eins og: er einhver að hlusta á mig? Ekki hafa áhyggjur.
Hver og einn veitir þér þá athygli sem hann getur
.

Auðvitað hef ég áhyggjur, það er nú ekki nægilegt fyrir mig að fólk
sýni mér þá athygli sem það getur, heldur á það að gera betur en
það getur. Punktur basta.

Sjáið nú til, kona eins og ég sem er ætíð að gera betur en hún getur,
hefur ávallt rétt fyrir sér í einu og öllu, spreðar visku sinni, kærleika,
gamansemi, skrýtnum skoðunum á hinum ýmsu málum.
Það getur engin efast um að fólk eigi að sýna henni meiri
athygli en það getur.

Ég er til dæmis hundóánægð með borgar og bæjarmál, landspólitíkina,
dóma Hæstaréttar, ofbeldi á konum og börnum, einelti bæði barna á börn
og kennara og annarra þeirra sem huga að börnunum okkar, því ekki
er eineltið minnst í þeim geira.
Vitið hvað ég gæti ritað í allan dag um þessi mál, en þar sem svo margir eru
búnir að gera þetta allt að umræðuefni og ekkert gerist þá held ég að ég
sitji hjá í þetta skiptið.

Langar samt til að biðja ykkur þar sem skólarnir eru nú að byrja,
hlúið að börnunum ykkar, þeim er hætta búin ef þið komið eigi út úr glerhúsinu
og látið af feluleiknum, það er ekki allt eins gott og þið haldið að það sé.
Og í þessu ætla ég að vera svo tilætlunarsöm að fara fram á að þið sínið meiri
athygli en þið getið.
                                      Góðar stundir
.


Fyrir svefninn.

Þetta er nú búin að vera meiri dagurinn, vaknaði eldsnemma
til að fara í þjálfun, sagði ég þjálfaranum mínum frá því sem
hefði gerst með veikindi mín og að ég hefði tekið ákvörðun um
lífstílsbreytingu, hún var að sjálfsögðu ánægð með það,
hún sagðist vera tilbúin að setja saman æfingaprógramm
fyrir mig um leið og ég væri tilbúin, já takið eftir, "tilbúin"
Sko er búin að vera hjá henni í 3 ár og allan tíman vissi hún
að ég var ekki tilbúin, var bara í feluleik við sjálfan mig, en að
það hefði eitthvað þýtt að tala við mig um það, Nei ekki aldeilis.
Svo illa er komið fyrir mér að smátt verð ég að byrja.
Gísli minn fékk að vita úr sínum blóðprufum um hádegið og á
að fara inn á Akureyri í Óm skoðun á mánudaginn.
Lagði mig aðeins og Gísli minn fór að þvo bílinn
.

En vitið þið?
Margir eru kostir menningarinnar, en hún hefur líka sína ókosti.
Hörgull á steinefnum í daglegri fæðu er einn hinna alvarlegustu.
Þar sem mannslíkaminn er byggður upp af steinefnum, er honum
lífsnauðsyn að fá nægileg steinefni úr fæðunni sér til viðhalds.
Sjávargróður hefur inni að halda öll þessi steinefni.
Sjórinn er vökvi, mjög flókinn af samsetningu.
Hann er að þrem og hálf hundruðustu uppleyst, ólífrænt steinefni.
Sjávargróðurinn breytir þessum ólífrænu steinefnum í lífrænt form.

Þar sem yfirborð sjávarins er lægra en þurrt land, leita til hans
þau efni, sem hreyfiöfl náttúrunnar færa úr stað.
Vindur, vatn og ís flytja sífellt með sér föst efni til sjávar.
Auk þess flytur vatn með sér uppleyst efni úr jarðveginum til sjávar,
þar sem þau geymast síðan. Höfin hafa þannig smá saman orðið
efnabanki, sem þurrlendið þolir engan samanburð við.

Þessi söfnun nitsamra efna er ótæmandi verkefni efnafræðinga
til úrvinnslu. Það virðist óhætt að spá því, að óbornar kynslóðir
muni læra að ausa af ótæmandi auðæfum hafsins og gagn af.

Mér finnst þetta stórmerkilegt að lesa, því ekkert veit maður
nema að lesa um það.

Ein eftir hana Ósk.
               Átti að lýsa einum Kveðandafélaga
               sem hesti.

                           Nú skal meta mætan hest
                           makkinn grár og úfinn,
                           veglegt bak og viljinn sést
                           þó vanti rófustúfinn.

                           Á það til að skella á skeið
                           skír og hreinn á svipinn
                           En fráleitt dæmi um fagra reið
                           fyrr en ég prófa gripinn.

                                             Góða nótt.Sleeping


Já það mallar víða í pottum

Tek upp hanskann fyrir Marsibil Sæmundardóttur, er hún
segist eigi styðja nýjan meirihluta Framsóknar og Sjálfsflokks
í borgarstjórn.

Marsibil segir við Fréttablaðið að hún hafi engan áhuga á að koma
Framsókn eða Óskari illa en hún hafi ekki trú á þessu samstarfi en
með stuðningi við það væri hún að samþykkja framgöngu
sjálfstæðismanna á kjörtímabilinu og hvernig pólitík þeir hafi ástundað.

Nú að mínu mati ef hún eigi getur stutt þá framgöngu þá á hún heldur ekki
að gera það, en hún ætlar að starfa áfram hvort sem það verður undir merkjum
framsóknar eður ei.
Ég vona bara fyrir allar sakir að hún ákveði í hvaða flokki hún ætli að tilheyra.

                   *******************************************

Skondnasta fréttin er að sjálfsögðu að aumingja Ólafur var vélaður inn í
samstarf við sjálfstæðisflokkinn, Æ, Guð heldur þessi maður að það sé
hægt að segja manni allann andskotann.

                  *********************************************

Svo er það stóra spurningin hvað heldur þetta samstarf lengi,
og hvað er þetta skrípaleikrit búið að kosta borgarbúa???


mbl.is Marsibil styður ekki nýjan meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segjum nei við ofbeldi.

Ég tók mér það bessaleifi að afrita þetta af síðu Eddu Agnars.
vona að hún taki það ekki illa upp.
Þetta er bara afar nauðsynlegt og hvet ég alla konur og kalla
til að skrifa undir listan, það er linkur hér að neðan inn á Unifem
og þar er einnig ýmislert að sjá og lesa.
Vaknið vaknið kæru landsmenn
.

           ************************************


Ofbeldi gegn konum er málefni sem getur ekki beðið. Að minnsta kosti ein af hverjum þremur konum er barin, þvinguð til kynlífs eða misnotuð á annan hátt einhvern tímann á lífsleiðinni. Fimmta hver kona verður fórnarlamb nauðgunar eða tilraunar til nauðgunar.

Ríkisstjórn Íslands skrifaði undir í morgun.

 SEGJUM NEI VIÐ OFBELDI

Skrifið ykkur inn á undirskriftalista inn á Unifem og segið NEI við ofbeldi á konum í heiminum.

"Mansal, kynferðisleg áreitni, limlesting á kynfærum kvenna, morð vegna heimanmunds, heiðursmorð og útburður stúlkubarna eru hluti af sama vandamáli, þetta er allt ofbeldi gegn konum. Ekkert land, engin menning, engin kona ung eða gömul, er ónæm fyrir þessari plágu. Alltof oft er komist upp með þessa glæpi án þess að refsað sé fyrir og ofbeldismennirnir ganga lausir. “ sagði Regína Bjarnadóttir stjórnarformaður UNIFEM á Íslandi á blaðamannafundi í dag þegar hún vakti máls á mikilvægi þess að ríkisstjórnir heims gripu til aðgerða gegn kynbundnu ofbeldi."

Tekið úr frétt á mbl.is

http://www.unifem.is/unifem/

Hvaða átak er þetta?
Þetta er alþjóðlegt átak á vegum Þróunarsjóðs Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna eða UNIFEM sem hófst 25. nóvember 2007 og lýkur sama dag árið 2008. Nú þegar hafa nokkrar ríkisstjórnir skrifað undir átakið í heild sinni og þar með sýnt vilja í verki til að uppræta ofbeldi gegn konum. Nú þurfum við samstöðu til að senda út sömu hvatningu til annarra ríkisstjórna heims.

Stöndum okkur í þessu, horfum í eigin barm og skrifið undir.
Með þakklæti og vonandi eigið þið góðan dag.
Milla.


Fyrir svefninn.

Í sláturhúsinu á Húsavík var Þormóður Torfason
á Birningsstöðum í Laxárdal einn af fláningarsmönnunum.
Á þeim árum stóðu yfir fjárskipti vegna mæðiveiki, og voru
öll þau mál mjög til umræðu meðal manna.
Þóttust sumir hafa hitt og þetta að athuga við ákvarðanir
og úrskurði mæðuveikinefndar.
Nú varð mönnum sem oftar tilrætt um þessi vandamál
í sláturhúsinu.
Þá skaut Þormóður inn þessari athugasemd:
,, Það er ekki mæðuveikin, sem er mesta plágan, piltar!
Það er mæðuveikisnefndin."

          Þegar maður þyrfti að vera á mörgum
          stöðum í einu, væri þægilegt að geta
          klónað skepnuna.

                Ef bæta þarf brýnasta vandann
                má biðja um aðstoð að handan.
                En bóndinn er sár
                með bænirnar klár
                ef klóna þeir kerlingarfjandann.

Eftir hana Ósk að sjálfsögðu.

Munið svo elskurnar mínar, það er forbannað að
borða eftir kvöldmat.

                                 Góða nóttSleeping


Ég er samt afar stolt af þeim.

Ja ég er afar stolt af þeim þetta eru og verða strákarnir okkar,
Handbolti er mín uppáhaldsíþrótt og þeir eru bara flottastir,
ég ætla nú bara hreint að vona að engin fari að agnúast út
í þessar elskur þeir eiga nú annað skilið.
                   **************************

Má til að segja ykkur á fimmtudögum tökum við gamla settið
ætíð til í kotinu, í morgun var allt ryksugað allar mottur út
og engillinn minn skúraði allt kotið með ediksblöndu.
En áður og meðhliða fór mín í stuð þvoði alla borðstofustólana,
tók baðið í nefið, handþvoði alla þröskulda, lista og meðfram þeim,
þið vitið að þessar fjandans möppur taka ekki skítinn sem kemur
í raufarnar upp við listana og engin nennir að vera með tusku til
að þrífa þetta jafnóðum, nema ég.
Þurrkaði svo af öllu og pússaði var búin að taka tölvuverið,
gestaherbergið og skeiðverið í gær + alla glugga.

Síðan eldaði ég okkur léttan hádegisverð, takið þið eftir því sem ég
er að segja: ,, Fyrir mánuði hefði ég ekki getað þetta".
Bara við að léttast um þessi 6 kg. sem fóru í veikindunum mínum
og hið breytta hugarfar hefur gert kraftaverk.
Að viðurkenna fyrir sjálfri sér feluleikinn sem maður er ætíð í
koma fram og vinna í þessu, og það ekki fyrir neinn nema sjálfan sig
er bara stórkostlegt. 'Eg er slolt af sjálfri mér.


mbl.is Ísland tapaði með einu marki fyrir Suður-Kóreu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.