Var 7 ára

Gleymi aldrei þessum 5 dögum þó ung hafi verið, Dagfinnur Stefánsson og hans fólk voru góðvinir minnar fjölskyldu, það var tiplað á tánum til að hlusta á fullorna fólkið tala um hvað, hvernig og að það væri ekki líklegt að þau væru lifandi, en svo komu fréttirnar og það voru gleðifréttir, engin réði við tárin sín og spennufallið mikið.

Ég reyndi að koma inn mynd af þristinum en ekki tókst það, flaug mikið með þeim í innanlandsfluginu bestu vélar allra tíma, svo eru þær fallegustu vélar allra tíma að mínu mati.

Hefði svo gjarnan viljað vera þarna í gær, en vissi ekkert um þetta.

Í þessari björgun sýndi það sig hvað í okkur býr og búið að gera síðan, við íslendingar erum hetjur  og stöndum saman þegar á reynir.


mbl.is Minntust Geysisslyssins með fallhlífarstökki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta var frábær endir á hræðilegu slysi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.9.2010 kl. 11:36

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Svo sannarlega Ásthildur mín, ég hitti í vor Dagfinn og systur hans við útför móðurbróður míns, Ingvar Þorgilsson sem einnig var flugstjóri, en ekki í þessari frægu ferð, það er yndislegt að hitta gamla vini

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.9.2010 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband