Kann fólk enga háttvísi
29.2.2012 | 09:37
Eða þannig, mér finnst fólk almennt vera vont við hvort annað, þú opnar blöðin sérð ekkert nema ljótar fréttir sem einkennast af ljótum orðum, ásökunum og einhverju sem segir, ég skal sko ná mér niður á þér/ykkur hvað sem það kostar. Ein setning sem ég hjó í var: " Við unnum, sættu þig bara við það" Þeir sem vinna í dag eru ekki við láglaunafólkið, nei það eru toppar á móti toppum, eða þeir sem telja sig toppa.
Netheimar loga af neikvæðni, ljótum orðum, hefnigirni og ég spyr hverjum er það til góðs, engum bara þeim sem framsetja það til ills og vansa oft er nefnilega fólk að kenna fólki um sem á enga sök eða sök hefur ekki verið sönnuð.
Fólk fær skítkast á sig í allri þjónustu sem það þarf að nota þó langt sé frá því að allir séu þannig, enda er maður svo glaður að fá góða þjónustu að maður lætur vita af henni, það verður nefnilega að láta vita af þessu góða svo þetta illa nái ekki yfirhöndinni.
Hugsið um hvað það eru mörg börn og unglingar á facebook t.d, þau lesa allan ósómann leggja saman 2+2 og fá út 5. ætla bara að vona að unga fólkið okkar sé svo bráðgert að það sjái í gegn um þessa vitleysu alla.
Veit ég vel að sum mál sem þarf að tala um útheimta hvöss og siðlaus orð og það er í lagi svo fremi sem við höldum okkur innan rammans, ég er ekki hrifin af römmum, en stundum verður fólk að vera innan hans og úrskíra vel fyrir börnunum sínum hvað um ræðir, þarf ekki að fara nánar út í það, allir vita sem vilja vita.
Hvernig væri að við tækjum okkur saman og hugsuðum áður en við skrifum.
Kærleik á línuna
Athugasemdir
Sammála þér Milla mín. Eða þegar alþingismaður kallar fram í ræður Hættu að ljúga Gunnar, eða af hverju drullastu ekki til að segja landráðamaður? Er þetta boðlegt á alþingi íslendinga? Ég segi nei, svona orðbragð ætti að víta og síðan vísa fólki út. Ráðherrum sem og öðrum.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.2.2012 kl. 13:15
Já elskan ég hlustaði einmitt á þessi frammíköll þau voru afspyrnu dónaleg og svo margt annað sem engin talar um bara lætur sér linda
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.3.2012 kl. 08:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.