Trú á Álfa og drauga.

Terry Gunnell Dósent í Þjóðfræði við HÍ. Segir: " Það er líklegt að vaxandi
trú á reimleika megi reka til Hollywood-kvikmynda, auk þess sem borgin og húsin
eru að eldast og sveitin að verða dularfyllri".
Ekki er ég nú sammála þessu við höfum alltaf haft þessa trú,
og það eru miklu fleiri sem hafa hana
enn þeir sem þora að viðurkenna það svona opinberlega.
Hægan! Hægan!. Erum við svo grunnhyggin að við förum að trúa einhverju
bara ef við förum í bíó nei! nei! nei!.
Við erum alin upp við þessa trú, og flestir trúa.
það hafa alltaf verið til gömul hús í borginni.
Sveitin hefur alltaf verið dulmögnuð.
Að mínu mati þarf ekki að trúa eða ekki trúa staðreyndum,
þær eru bara þarna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Sæl og blessuð, ég átti leið hér um og ákvað að láta vita af mér. Ég er þér algjörlega sammála um álfa"trúnna", við höfum alltaf búið hérna saman, náttúruverurnar og við .   Það er bara hluti af því að vera í sátt við umhverfi sitt, að vita "að þær eru bara þarna" þessar verur.

bestu kveðjur og takk fyrir góðan pistil

Ragnhildur 

Ragnhildur Jónsdóttir, 24.9.2007 kl. 14:17

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sæl Ragnhildur, Takk fyrir athugasemdina,
náttúran og umhverfið er svo stór hluti af mínu lífi
að verurnar sem eru ekki öllum sýnilegar eru bara
allt í kringum mig og mér finnst það afar notalegt.
Það var reyndar eitt sem mér láðist að tala um  og það er: 
" ég tala ekki um drauga eða reimleika, heldur er þetta fólk af öðru tilverustigi sem er að láta heyra í sér".
                 Góðar stundir.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.9.2007 kl. 16:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.