Áhrif kynþokka.

Kynþokki  getur virkað  á marga vegu á fólk, og ég spyr til hvers eru
nú svona kannanir? Erum við ekki fullfær um að finna lyktina af þeim
kynþokka sem höfðar til okkar.
Sjáið til við fáum á silfurfati fullt af myndum, af mega flottu fólki úti í heimi,
og segjum:,,Guð hann eða hún eru æði, væri nú ekki dónalegt, að þið vitið"
Enn við ættum að sjá þetta fólk í návígi, við fengjum áfall.

Svo er annar sjarmi sem er svo skemmtilegur, það er: ,, Þú ferð og ætlar að
sækja nýa bílinn sem þú varst að kaupa, kemur ekki á móti þér þessi líka
sjarmörinn og þið klárið dæmið, sko með bílinn, og eruð eiginlega daðrandi við það
allan tíman þangað til þú keyrir út á bílnum,
þá er þetta líka gleymt", eða þannig.
Nú þú ferð í stórverslun, á kassanum lendir þú á ungum manni
sem kann að gefa af sér sjarma á réttan hátt,
þú tekur á móti, því það lyftir deginum á æðra plan.
þetta er að mínu mati besti kynþokkinn.Cool


mbl.is Sarah Jessica Parker laus við kynþokka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Eins og ég sagði á blogginu hennar Huldar þá er ég svo heppin að vera með lausan kynþokka    kær kveðja í gamla heimabæinn minn, ég ólst upp í Túngötu 5, yndislegur bær og gott fólk. 

Ásdís Sigurðardóttir, 26.10.2007 kl. 16:08

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Sammála þér, mér finnst fólk sem gefur af sér kynþokkafullt, ég get ekki dæmt um kynþokka eftir mynd. Hvað hefur maður oft hitt manneskju og hugsað, vá flott!  en við við kynningu fellur það um sjálft sig og svo öfugt.

Huld S. Ringsted, 26.10.2007 kl. 17:10

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þið eruð frábærar stelpur, bíddu laus kynþokki, hvað er það???
hvenær fluttir þú í burtu Ásdís?
Hafið það æði, og sýnið af ykkur kynþokka

P.s. Huld, við erum með hund sem tvíburarnir mínir eiga, erum að passa hann meðan þær eru á Laugum sem verður trúlega næstu 3-4 árin,
svo það er mikið búið að skoða hvolpana á síðunni þinni þeir eru æði.
                          Góðar kveðjur frá Húsavík.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.10.2007 kl. 18:15

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Já þeir eru algjörar dúllur, ef þú veist um eitthvað gott heimili fyrir þá á Húsavík þá eru þeir gefins

Huld S. Ringsted, 26.10.2007 kl. 18:55

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Skal athuga stöðuna í kringum mig,
læt þig vita ef eitthvað kemur uppá.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.10.2007 kl. 20:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.