Fyrir svefninn.

Sólveig gamla var komin á tíræðisaldur, en hún vissi sínu viti,
og gárungarnir kölluðu hana stundum Morgunblaðið,
enda var hún oft spurð í þaula. Eitt sinn kom hún í búð,
þar sem Hendrik Berndsen var verslunarmaður, en hann þurfti
oft að leita hjá henni frétta eins og aðrir.  Nú spurði Hendrik,
hvort hann væri fiðluleikari, Norðmaðurinn sem ætti barnið með
 henni dóttur-dótturdóttir hennar.
,,Ja hann kunni að minnsta kosti að spila á þá fiðluna,"
svaraði sú gamla.

               Fánýt ást.

                                     Lítilsvirði ást sú er,
                                     upp þó sýnist blossa,
                                     sem að engan ávöxt ber
                                     utan tóma kossa.
                                                     Jónas Jóelsson.

                                                                 Góða nótt. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Heima á Húsavík í den var kona sem hét Anna, hún vissi allt um alla og var svona lifandi fréttastofa við kölluðum hana Önnu TASS. kær kveðja á yndislegu víkina mína, ég fer nú að senda þig upp í kirkjugarð að setja ljós á leiði míns yndislega fyrrverandi eiginmanns. Þekki enga lengur heima.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.12.2007 kl. 22:26

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásdís mín það væri nú alveg sjálfsagt að setja ljós á leiðið fyrir þig,
en ég get ekki labbað neitt að ráði.
Ég veit að það er hægt að kaupa ljósaþjónustu hjá kirkjugarðinum.
Var hann ekki héðan? Man eftir að hafa heyrt talað um Önnu Tass.

                               Kveðja Milla.

                  Linana á milli mikið á ber,
                  sorg söknuð og leiða.
                  En þú átt líf sem betur fer,
                  sem engin fær að meiða.
 

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.12.2007 kl. 09:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband