Fjöldskylduhelgi.

Já fjölskylduhelgi, Íris mín kom með Báru Dísina
sem er níu ára fljúgandi í gærmorgun,
Ingimar fór að ná í hana inn á Akureyri og engillinn fór
að ná í snúllurnar þrjár inn að Laugum.
Síðan komu allir til mín í Brunch, það var æðislegt, vantaði
bara einkasoninn sem býr í Njarðvík og þau eru með
fimm mánaða gamlan yndislegan Sölva Stein,
en þau koma bara seinna.
Síðan fóru systur eitthvað að búðast, síðan lagði ein sig,
hinar að skoða hús og íbúðir.
kvöldmaturinn var hér hjá mér.
var ég með fyllta Kjúklinga, meðlæti var villisveppa-portvínssósu,
kartöflur-báta, y með salvíu og chili pepper-olíu og
bakaðar í ofni og mais baunir, þetta var æði.
Dóra og snúllurnar gistu hjá mér að vanda, Íris og Bára Dís
hjá Milla jr. Um hádegið komu allir til okkar og var fjör í bæ í allan dag
Dóra bauð síðan í pitsu heima hjá sér í kvöld.
Ég var orðin þreytt svo við vorum bara heima.
Mæðgur fara heim á morgun, en þetta er búin að vera yndisleg helgi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.