Fyrir svefninn.

Sótt kom upp á heimili Kolbeins,
og dó Helga kona hans úr henni,
og sjálfur var hann við rúmið. Daginn eftir
að konan hans dó, kom nágranni hans, Halldór í Næfurholti,
til hans og segir, er hann sér hann: ,,Ósköp held ég  þú sért
lasinn, Kolbeinn minn". Þá svaraði Kolbeinn:
,, Ójá, en verri er hún helga mín hún dó í gær". 

Jón Espólín sýslumaður kvað um Pétur Skúlason,
alræmdan kvennaflagara, er hann reið hjá bæ hans:

                             Hér er bær þess mikla manns,
                             sem mikið getur,
                             harðsnúinn og heitir Pétur
                             hrútur bæði sumar og vetur.

Gömul vísa.

                            Allt bar til í einu þar,
                            uxu bæjar sýkin:
                            konan fæddi, kýrin bar
                            kötturinn gaut og tíkin.

                                             Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Kanntu þetta allt?
Annars góða nótt Milla

Róslín A. Valdemarsdóttir, 10.2.2008 kl. 20:42

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Nei nei kann ekkert af þessu, allt sem ég skrifa undir titlinum fyrir svefninn, er tekið upp úr Íslenskri fyndni, ég fékk þær bækur á fornbókasölu, enda ekki verið gefnar út í tuga ára.
                            Góða nótt snúlla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 10.2.2008 kl. 20:49

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Úff, ég ætlaði sko að segja það!!
Mér finnst samt ekkert rosalega fyndið við þetta, skil kannski bara ekki húmorinn

Róslín A. Valdemarsdóttir, 10.2.2008 kl. 20:51

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er líka svona hrútur bæði sumar og vetur.  GN elsku Milla.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.2.2008 kl. 00:28

5 identicon

Díses kræst hvað þú bloggar mikið, vildi að ég væri svona dugleg

Eva Kristín (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 05:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.