Fyrir svefninn.

Í prestakalli sr. Björns Þorlákssonar frá dvergasteini
lentu tveir menn í illdeilum við drykkju.
Annar þeirra fór halloka og var barinn til óbóta.
Hann stefndi andstæðing sínum fyrir sáttanefnd,
bar þar þungar sakir á hann og sagði meðal annars,
að hann hefði barið sig 11 högg.
Þá varð sr. Birni sem var sáttasemjari, að orði:
>>En sú stilling, að standa kyr og telja.<<


Í  Morgunblaðinu 179. tbl. 7. ágúst Þ. á.
stendur eftirfarandi klausa í eftirmælum
eftir merkan bónda í Borgarfirði:

>> Hann átti því láni að fagna, að eignast þrjár
ágætiskonur, en því láni fylgdi sú stóra sorg,
að missa tvær þeirra.<<
                                          Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hí hí hí, klikkar ekki knús til þín og GN 

Ásdís Sigurðardóttir, 24.2.2008 kl. 22:17

2 Smámynd: Erna

Guð gefi þér góða nótt Milla mín.

Erna, 24.2.2008 kl. 22:17

3 Smámynd: Solla Guðjóns

Hahha éf hef ekki roð við þér...ég er búin að bjóða þér góða nótt í einhverri annari færslu hjá þér ....líklega í gær.......ég var að skoða þær færslur.

Ég sé að þú hefur þann skemmtilega sið að koma með "Fyrir svefninn"færslu.Mjög sniðugt hjá þér og skemmtilegar smásögurnar og stökurnar.

Góða nótt aftur vinan

Solla Guðjóns, 24.2.2008 kl. 22:44

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Fastir liðir eins og venjulega að kíkja á "fyrir svefninn" hjá Millu, klikkar aldrei!

Takk fyrir mig og góða nótt Milla mín

Huld S. Ringsted, 24.2.2008 kl. 23:16

5 Smámynd: Brynja skordal

Til hamingju með daginnGóða nótt

Brynja skordal, 24.2.2008 kl. 23:34

6 identicon

Hæ Hæ

Bara á blogg rölti

Raffy (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 00:15

7 Smámynd: Ragnheiður

Hehehe já hér verður maður að koma við áður en maður náttar sig. Ég er sko að horfa á Óskar   

Ragnheiður , 25.2.2008 kl. 02:59

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk elskurnar mínar, vildi óska að þið væruð allar komnar í morgunmat hjá mér, vonandi hittumst við einhvertímann.
það er með þig Raffy, þú verður bara að taka því þótt ég
innleiði þig í kvennahópinn á meðan ég veit ekki hvort þú ert karl eða kona, en líklega ert þú karlmaður, en skiptir það nokkru máli???
Þú ættir nú bara að opna síðu, þá getur maður reiknað út á skrifum þínum hvort þú ert kona eða maður.
                      Knúsý kveðjur inn í daginn.
                               Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.2.2008 kl. 08:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband