Borgarstjóri að ári, Hver ætli það verði?

Vilhjálmur mun ekki taka sæti borgarstjóra að ári.
Þau sem hafa gefið kost á sér eru
Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Gísli Marteinn Baldursson.
Júlíus Vífill Ingvarsson.
Og það er eitt víst að sátt verður að vera um kosningu
eins þeirra, í borgarstjórastólinn.
Ef að það verður ekki, bætist sú rimma ofan á hin rykkornin,
sem gleymast eigi svo gjörla.
Komin tími til að huga að heill flokksheildarinnar, en ekki bara
að rífast eins og krakkar í sandkassaleik.

Það hefur verið ymprað á því í fréttum að nýtt borgarstjóraefni
yrði sótt út fyrir raðir kjörinna fulltrúa,
ef það mundi gerast þá væru þeir að gefa í skin að
engin í þessum hóp væri hæfur sem borgarstjóri,
væri það afar slæmt fyrir flokkinn.
                                                                 Góðar stundir.


mbl.is Þrjú gefa kost á sér í borgarstjóraembættið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hverskonar lilðsheild verður þetta.  Og hvernig ætli samstaðan og samvinnan verði.  Þetta er ótrúleg staða sem upp er komin. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.2.2008 kl. 08:31

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég er sammála þér í því það er í raun það eina sem ég óska er friður
en þetta er leiðindamál frá upphafi til enda, en Reykvíkingar eiga heimtingu á að það skapist vinnu friður.
Hef fulla trú á því að þetta góða fólk sem í Borgarstjórn er,
geti, er upp er staðið unnið saman að þeim málum sem eru á dagskrá. en hefur þú nokkurn tíman vitað annað eins rugl
Ásthildur mín?      
                           Kveðja vestur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 25.2.2008 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.