Algjörlega til skammar.

Já það er algjörlega til skammar, að ráðnir séu til landsins
verkamenn frá öðrum löndum, og síðan komið fram við þá
eins og þræla og einhverja þurfalinga.
Er ekki komin tími til að við hegðum okkur eins og
heimsborgarar, tökum á móti vinnufólki með virðingu,
hvort sem það er að koma í verkamannavinnu eða
hálaunastörf, mér skilst að þar sé mikill munur á.
Mundum við vilja láta koma illa fram við okkur,
færum við í vinnu erlendis, ég held ekki.
                           Góðar stundir.


mbl.is Greiddu 4,2 milljónir kr. í vangreidd laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hef verið með fólk frá Úkraínu og Moldavíu hér í vinnu við endurbyggingu í sveitinni á undanförnum árum og það er með ólíkindum hvað þetta fólk lætur bjóða sér.  En því miður er það nú svo að ef ég rétti litla fingur þá var það búið að hrifsa alla hendina og meira til. En að borga fólki ekki launin sín og koma skammarlega fram við það er óafsakanlegt.  

Ía Jóhannsdóttir, 6.3.2008 kl. 10:14

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Auðvitað er fólk misjafnt, og það lætur bjóða sér ýmislegt vegna fátæktar sinnar, það er svo hrætt við að missa vinnuna.
Ég á afar bágt með að þola svona misrétti.
Fjölskylda mín hafði yfir hundrað manns í vinnu og afi sagði alltaf að allir væru með sama rétt, held að engum hafi liðið illa á þeim vinnustað.
                              Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.3.2008 kl. 10:48

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sammála.  Arg.  Ég má ekki einu sinni hugsa um þetta án þess að missa algjörlega kúlið.

Knús Milla mín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.3.2008 kl. 13:40

4 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þetta er óþolandi og sjálfsagt mikið um þetta. Þar sem ég bjó fyrir austan var svona hugsun hjá einum útgerðarmanni: Fá bara Pólverja í vinnu og borga þeim skítalaun. Svo borgaði hann þeim seint og illa og ef þau voguðu sér að kvarta þá var þeim hótað að þau yrðu send heim. Ég hjálpaði einni Pólskri með að kanna veikindaréttinn hennar því hann sagði henni að hún hefði engan rétt í veikindum en ég með hjálp stéttarfélagsins rákum þetta öfugt ofan í hann. Það er örugglega fullt af svona sögum til.

Huld S. Ringsted, 6.3.2008 kl. 14:12

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Stelpur þetta er óþolandi, að það skuli vera til fólk, ekki bara á Íslandi, sem kemur fram af svona fyrirlitningu við aðra.

þegar ég var yngri fór ég sem selskapsdama hjá hefðarfrú einni,
til London að læra ensku.
Hún var með tvær vinnukonur sem sáu um verkin hún talaði við þær eins og þær væru skíturinn undir löppunum á henni.
Ég mátti ekki tala við þær, nema ef ég þurfti að segja þeim fyrir verkum, það var ekki sæmandi fyrir unga stúlku eins og mig að umgangast þær, ég hafði nú bara aldrei lent í annar eins vitleysu, um leið og hefðarfrúin var farin á skrifstofuna sína, hún var fasteignasali, fór ég beint niður í eldhús í te með vinnukonunum.
                                Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.3.2008 kl. 15:23

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir þitt innlegg Ólafur Þór.
            Kveðja. Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.3.2008 kl. 15:33

7 Smámynd: Tiger

 Gagnkvæm virðing og traust leiða af sér það sama til langs tíma litið. Ef við sýnum erlendum gestum okkar vanvirðu og niðurlægingu - þá megum við eiga von á sama í þeirra heimalandi seinna meir. Ég er sammála þér að það er algerlega til skammar hvernig sumir vinnuveitendur fara með sína starfsmenn sem eru af erlendum uppruna!

Flestir sem ég þekki af erlendu bergi eru vinnusamt fólk sem er iðið, samviskusamt og ósérhlífið. Auðvitað eru alltaf innan um fólk sem er nákvæmlega hið öfuga, en í minnihluta þó. Við erum líka svona á erlendri grundu, yfir höfuð vinnusöm og til mikilla fyrirmyndar - en eigum líka okkar tómata sem ekki eru til góðrar landkynningar.

Burt með húsbændur sem misnota hjú sín, slíkt ætti ekki að geta gerst núna á árinu 2008. Jafnrétti fyrir alla og jöfn launakjör fyrir sömu vinnuna - hvort sem er um að ræða íslenska eða erlenda vinnuþjarka!

Tiger, 6.3.2008 kl. 16:27

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tramp! tramp! Tramp! áfram gakk og vinnum að þessu, útrímum
slæmri og fáránlegri hegðun fólks.
Ég þekki líka útlendinga sem eru sjálfum sér og sínum til sóma.
                                  Knús kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.3.2008 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband