Fyrir svefninn.

Lögregluþjónn var á gangi og sá drukkinn mann
vera að stríða við að koma lykli í skráargatið á
útidyrahurðinni að húsi sínu.
,, get ég hjálpað þér?" spyr lögregluþjónninn.
,, Já", segir maðurinn. ,, Gerðu svo vel og styddu
húsið, meðan ég kem lyklinum í".


Þorleifur ríki á Háeyri blótaði aldrei.
Einu sinni segir maður við hann:
,, Heldurðu að það sé synd að blóta?"
,, Ekki veit ég það", segir Þorleifur,
,, en mér þykir vissara að gera það ekki".

SR. Oddgeir í Vestmannaeyjum var mjög barngóður.
Hann ól upp dótturson sinn og sá ekki sólina fyrir honum.
SR. Oddgeiri þótti gott í staupinu, og gaf hann stundum
dóttursyni sýnum að bragða áfengi, þegar hann fór með það,
en drengurinn var þá sex ára.
Sigurður slembir sagði útgefanda þessa rits eftirfarandi sögu.
SR. Oddgeir sat að drykkju heima hjá Sigurði
og var orðin þéttkenndur.
hann fer þá að tala um dótturson sinn og hælir honum mjög.
Að endingu segir hann:
,, Svo er hann svo góður við vín".

                                          Góða nóttSleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gaman af þessu elsku Milla mín.

Góða nótt elskan.

Kristín Katla Árnadóttir, 12.3.2008 kl. 21:15

2 Smámynd: Heidi Strand

Heidi Strand, 12.3.2008 kl. 21:20

3 Smámynd: Brynja skordal

Brynja skordal, 12.3.2008 kl. 22:25

4 Smámynd: Erna

Góða nótt og takk fyrir mig.

Erna, 12.3.2008 kl. 23:19

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þeir voru nú það yfirleitt prestarnir, enda getur engin eyjamaður hafa látið svona. ætli SR. Oddgeir hafi ekki lært til náms í Danaveldi?
segjum það bara.

Sigga mín ég kann þær nú ekki utan að þessar sögur, tek þær upp úr bókum.

Takk fyrir innlitin allar saman og eigið góðan dag
                      Knúsý kveðjur.
                      Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.3.2008 kl. 07:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband