Alltaf endurtekur sagan sig.

Datt í hug, er ég heyrði eina góða um daginn, dag sanna.
Maður nokkur hitti konu, sem spurði hvað er títt?
hann leit á hana sorgmæddum augum og sagði:
,, Hún er farin frá mér", Hvað segir þú, ertu að meina konuna þína?.
já hún bara fór, sagði að hún væri búin að kaupa sér íbúð,
tók síðan allt það innbú sem henni hugnaðist, og ég sit eftir
með sárt ennið. "Þvílíkt væl"

Síðan fór að heyrast í hverfinu, haldið ekki að helvítis kerlingin hafi
bara farið og skilið karl greyið eftir með tvær hendur tómar.
hvers eiga þeir að gjalda þessir góðu menn.

Ég gat nú ekki annað en hlegið, góður maður, við hvern?. Sjálfan sig.
Sko ég spyr alltaf, af hverju fór konan, af hverju fékk hún nóg eða
varð leið.

Hver veit sannleikann í málum annarra? engin nema sá aðili sem
ákveður að skilja,
ekki einu sinni makinn því sá sem eftir er vill aldrei sjá  hvað
í raun og veru gerðist.

Eitt er alveg á tæru frá minni hendi að undirlægjur, skælur og fólk sem
kennir alltaf öðrum um ófarir sínar eru bara að mínu mati óþolandi
væluskjóður.

Ætlaði nú bara að tala um fólk sem veit alltaf betur en fólkið sem lendir í
svona málum.
Einnig um fólk sem ekki getur staðið með sér og sínum í einu og öllu.

Skal tekið fram að skoðun mín á við um bæði kynin,
þó sagan hafi verið í upphafi um vælið í karlinum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Við erum öll okkar gæfusmiðir og óttalega vitlaust að skella skuldinni á aðra ef að illa fer.   Sumir telja sig alltaf vita betur en aðrir og eru því hvað manna duglegastir að tala um hluti sem þeir vita hvorki haus né sporð á................þekki svoleiðis týpur, hef lent á milli tannanna á þeim sjálf

Huld S. Ringsted, 18.3.2008 kl. 18:09

2 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er svo innilega sammála Huld. Hafðu það gott Milla mín

Kristín Katla Árnadóttir, 18.3.2008 kl. 18:22

3 Smámynd: Tiger

  Já, það er svo mikið til í þessu. Ótrúlegt alveg hve mikið sumir virðast fá út úr því að nýða niður fyrrum maka sinn eftir skilnaði. Þeir sem breytast svona og hella úr skálum vonbrigða sinna um allt - um hve mikið hinn aðilinn hafi svikið sig og gert svo mikið á sinn hlut, sýnir eingöngu innri manneskju þess sama. Faðir minn lenti einmitt í svona konu sem lét öllum illum látum eftir að þau skildu. Öll þeirra ár óð hún svo yfir hann að öllum í kring var um og ó. Á endanum gafst hann upp, eftir að hafa reynt mikið að tala við hana um vandamálið - og fór bara. Þetta gerðist síðasta haust og ennþá er hún að úthúða honum við alla sem vilja heyra. Sem betur fer voru fáir í kringum þau sem ekki þekktu hennar innri mann og fáir hlusta á ljót orð hennar. Svona fólk grefur sjálft sig bara dýpra í eigin gröf, engin vill umgangast fólk sem kennir öllum öðrum um eigin vandamál. Ég er algerlega sammála þér Milla, óþolandi fólk sem ekki getur bara gert það besta úr því sem það hefur í höndunum - frekar en að gera hlutina bara verri með voli og væli - og nýðingshætti gagnvart maka sínum...

Tiger, 18.3.2008 kl. 18:25

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góða skemmtun Gréta mín og blessi þig guð ævilega.


Tiger leitt að heyra þetta með pabba þinn, en gott að hann skildi fara, og ég held að við séum afar sammála um þessa hluti.

katla og Huld þó að þessi saga mín sé ekki um mig eða mína akkúrat núna, þá höfum við lent í þessu allavega við Huld og þekkjum þetta vel.

En það er eins og ég hef ætíð sagt maður eltir ekki ólar við vitleysuna.
það hefur reynst mér vel að gera það ekki.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.3.2008 kl. 20:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband