Dagurinn í dag.

Um hádegisbil var byrjað að snurfusa húsið,
allar hurðar, karmar, listar, skápar og rafmagnsdósir
allt var þvegið og pússað.
Engillinn fór með háþrýstidæluna út að framanverðu,
þar er engin krani úti (verður sko settur í sumar) svo það
þarf að leiða slönguna inn á bað,
allt í einu sprakk allt niður og vatnið út um allt, sem betur
fer voru þær hér dætur mínar og gátu þurrkað allt upp,
míó míó var ekki par ánægð.
svo fór allt liðið sumir heim aðrir í búðarráp, en litla ljósið
kom til ömmu sinnar.
Vorum síðan öll í Tacko hjá Írisi.
bara yndislegur dagur þrátt fyrir vatnsflóð á baðinu.


                      Crying 2 
Má ekki gleyma að segja frá blómunum sem við fengum
frá barnabörnunum þau eru yndisleg.
Síðan fékk ég pakka frá Dóru minni 8 st. fylgidiska
svona hvíta ferkantaða ein og ég var búin að sverma fyrir
lengi. þær eru alltaf að gefa mér eitthvað þessar elskur.

 Kisses Takk fyrir mig, elska ykkur öll englarnir mínir.






« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Virðist sem margar kellur hafi verið í vorhreingerningum í dag.  Ég hafði það af að baka líka.  Déskoti dugleg sú gamla, ég.Lefse

Ía Jóhannsdóttir, 18.3.2008 kl. 22:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband