Til skammar.

Er þetta ekki alveg merkilegt, landssöfnun fer fram
tæki keypt, en þá vantar fólk til að vinna við þessa deild.
Hvað mundi það spara fyrst og fremst flogaveikissjúklingum
sem mundu eignast nýtt líf, geta unnið og þyrftu kannski ekki
að kaupa eins mikið af lyfjum og áður.

Hvað mundi það spara ríkinu sem þyrfti ekki að fá þessa sjúklinga
til innlagnar endalaust, það kostar sitt.
Halda þessir ráðamenn að það sé auðvelt að fá kast hníga niður,
og vakna upp á sjúkrahúsi, nei það er ekki gott.

Svo ég tali nú ekki um lyfin sem þetta blessaða fólk þarf að taka,
ég þekki til þess að það er ekki gott, sumir þola illa lyfin.

Og áðan var ég að lesa um meðferð á parkinson sjúklingum,
sem ekki fá þá meðhöndlum sem þeir þurfa, vegna manneklu.

Fyrir utan álagið sem þetta yndislega starfsfólk sjúkrahúsanna
þarf að taka á sig og vinnu aðstaðan, hún er til skammar.


mbl.is „Nú eru tækin til en þá vantar mannskap“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Satt segir þú þetta er til skammar.

Kristín Katla Árnadóttir, 26.3.2008 kl. 17:16

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

maður er nú löngu búin að fá upp í kok af ruglinu í þeim þessum háu herrum, þeir moka aldrei öllu upp á borðið, þar af leiðandi er ekki hægt endanlega að leysa málin.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.3.2008 kl. 17:30

3 Smámynd: Erna

Já Milla þetta er til skammar og bara sorglegt að þetta þurfi að vera svona.

Erna, 26.3.2008 kl. 17:45

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sigríður mín ég veit allt um það, manneklan er þarna vegna þess að
þessu góða fólki sem við eigum eru ekki borguð nægilega há laun og vinnuaðstaðan er ömurleg, ég hef séð þetta sjálf er ég hef legið á sjúkrahúsi.

Erna þú veist þetta líka.

                                                 Knús á ykkur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.3.2008 kl. 19:04

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Algjörlega sammála ykkur stelpunum í þessu máli. Það eru greidd skítalaun. Kveðja til þín  Girl 5

Ásdís Sigurðardóttir, 26.3.2008 kl. 20:08

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það er sko rétt röng skipting á fjármagni.
Og skítalaun.
                                 Knús á ykkur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.3.2008 kl. 20:12

7 Smámynd: Huld S. Ringsted

Forgangsröðunin á öllu er svo vitlaus hérna í þessu blessaða landi!

Huld S. Ringsted, 26.3.2008 kl. 20:46

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Satt og rétt maður getur alveg urlast af ergelsi stundum eða eiginlega alltaf.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.3.2008 kl. 20:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband