Það er svo margt sem er hættulegt almenningi.

Þar sem ég er algjörlega hlynnt þessum mótmælaaðgerðum
sé ég ekki að þær skapi hættu-ástand fyrir almenning,
Þeir væru ekki að stuðla að því þessir flottu strákar
sem eru að berjast fyrir okkur sem ekki geta tekið þátt
og að sjálfsögðu einnig fyrir sjálfan sig og sín fyrirtæki,
það er okkur í hag líka
Hvað er almannahætta? eru það ekki einnig allar þær
vegaþrengingar út um allt land, sem við þurfum að þola
svo ég tali nú ekki um Reykjanesbrautina frægu, hún
hlýtur nú að fara að komast í heimsmetabókina
vegna óhappa á henni, sem er of sorglegt að fara út í.
                             Góðar stundir.


mbl.is „Klárlega almannahætta"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Mér er það ekki svo kunnugt núorðið, en eftir fréttum að dæma þá mundi maður halda það.Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.4.2008 kl. 14:47

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þeir eru að standa sig frábærlega þessir menn, engin borgar þeim laun á meðan þeir mótmæla og þeir eru að vinna fyrir okkur öll, ekki annað hægt en að standa með þeim. Mig langaði svo á skíði þegar ég sá fréttina í gær, hef átt margar góðar stundir í brekkunum þarna, maður lét sig hafa að labba lengra en lyftan nær í síðustu ferð á kvöldin, þá rann maður langleiðina heim í bruni. Það var gott að vera barn og unglingur á Húsavík.   takk fyrir kærleikann sem streymir frá þér og Bjarni Ómar biður fyrir góða kveðju.

Ásdís Sigurðardóttir, 2.4.2008 kl. 14:49

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég er hætt að skilja landann, farin að tala færeysku og lifa af grænlenskum siðum!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 2.4.2008 kl. 14:58

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já Róslín við gætum lært margt af þeim, allavega mannasiði,
                           Knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.4.2008 kl. 15:04

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk Ásdís mín og ég bið líka að heilsa Bjarna Ómari.
                            Farið vel með ykkur
                              Ykkar Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.4.2008 kl. 15:08

6 identicon

Ég ætla að byrja á því að taka það fram að ég mér finnst ekkert að því að mótmæla, það er af hinu góða.

Aftur á móti set ég spurningamerki við það að loka götum og aðalæðum í borginni og á milli sveitarfélaga og mig langar að setja upp eitt dæmi fyrir ykkur ágæta fólk.

Segjum að ættingi ykkar lenti í slysi eða veikindum og þyrfti að fara með sjúkrabifreið, þessi sjúkrabifreið kemst síðann ekki á sjúkrahús í tíma vegna lokana þessara bílstjóra með þeim afleiðingum að sjúklingurinn deyr. Þá langar mig að spyrja ykkur.

Hversu léttvæg eru þau mótmæli sem urðu þess valdandi að þess sjúklingur dó? Hver ber ábyrgðina? Og er þetta þá ekki almannahætta??

Þið veltið þessu kannski fyrir ykkur þegar þið spáið meira í þessi mótmæli.

Í upphafi skal endinn skoða.

Jói (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.