Elstu börnunum refsað mest.

Það má alveg vera að foreldrar refsi elstu börnum sínum mest,
þau eru kannski að fara eftir væntingum annarra, Til dæmis,
foreldra sinna.

Annars lætur þetta orð refsing mér illa í eyru,
á að þurfa að refsa börnum?, á ekki að vera nóg að tala við þau
og gera þeim skiljanlegt að, þetta og hitt sé ekki í boði,
og það á svo ekki að tönglast á því sama við þau endalaust.

Ég tel og hef séð það á mörgum heimilum,
að eldri börnin fá gott uppeldi, er svo þau yngri fæðast,
þá taka þessi eldri það mikið að sér að ala þau upp,
og þykir mér það afar ljúft á að horfa.

Í sambandi við það, að þessi yngri afvegaleiðist frekar,
er ég ekki sammála á Íslandi er þetta allavega og fer
eftir svo mörgu.
                              Góðar stundir.


mbl.is Elstu börnum refsað mest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Góðan daginn Milla mín.

Það á aldrey að refsa börnum, það er altaf hægt að tala börn til, það er mín reinsla, það var móðir sem að ég þekki sem að reif dóttir sína á hárinu fram úr rúminu 12 ára gamla, hún átti að fara að vinna í saltfiski en hafði ekkert sjálfstraust og þorði ekki, þá var hun bara dregin á hárinu, svona var það.

Knus til þín elskan mín

Kristín Gunnarsdóttir, 17.4.2008 kl. 07:43

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þú þekkir nú trúlega þessa móður afar vel, Stína mín.

Knús til þín Hallgerður mín.

Gott að þú ert að koma til Sigga mín. knús kveðjur

Þið fáið allar þessa kveðju, frá Millu.

                       Orku mikla gef ég þér
                       orku sem endist daginn.
                       Mundu: Ekki má gleyma sér
                       allar götur, hugsa, og vera lagin.
                     

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.4.2008 kl. 08:28

3 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Ja Milla mín, það geri ég.

Knus

Kristín Gunnarsdóttir, 17.4.2008 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband