það er svo gaman að leika saman.

Vorið hefur ætíð haft þessi áhrif á fólk, skella sér
í sund á gleðistund, jafnast ekkert á við það.
En stundum er fólk að gera þetta í skemmdarhug
og sóðaskap, en oftast bara til að hafa gaman.

þegar ég fór í skólaferðalag er skyldunámi lauk,
það var upp úr öðrum bekk, sem er 10 b. í dag.
þá stálust strákarnir í sund, en við stelpurnar vorum svo
mikkir aular að við þorðum ekki.
En ætlaði bara að koma því áleiðis að allar götur hefur
þetta tíðkast, og allar sundlaugarnar sem eru út um allt land,
þessar gömlu góðu sem ekkert eftirlit er með,
ætíð er farið í þær, engum til skaða.

En auðvitað veit ég að þetta gengur ekki í sundlaugum
nú til dags, hreinlætið þarf að vera svo mikið.


mbl.is Skelltu sér í nætursund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna

Góðan daginn Milla mín. Ég hef nú líka svona nætursundferð á samviskunni  það var í sundlaug sem ég þori varla að segja frá en Það byrjar á H,,,,og endar á Húsavík  Síðan eru liðinn mörg ár og þetta er nú örugglega fyrnt. Við vorum bara Kátir unglingar og uppátækjasamir og vorum ekkert að hugsa of langt framm fyrir nefið á okkur. En skórnir mínir urðu eftir á bakkanum í flýtinum að koma mér í burtu því einhver hafði orðið okkar var. Ég ætti nú kannski að athuga með þá þegar ég kíki í kaffi til þín einhverntíman Milla mín, Þeir eru örugglega komnir aftur í tísku.

Erna, 21.4.2008 kl. 09:45

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Já misjöfn strákapörin.  Ég hefði aldrei þorað að gera svona sem unglingur, segi það alveg satt. 

Kveðja inn í daginn Milla mín.

Ía Jóhannsdóttir, 21.4.2008 kl. 10:59

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Erna mín mundi spyrja um skóna, kostar ekkert.
Hlakka til að fá þig í kaffi.
                           Knús til þín  prakkarinn þinn.
                                     Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.4.2008 kl. 12:01

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Nei Ía við erum svoddan kjúklingar.Þetta var líka allt svo virðulegt er við vorum að alast upp.
                                     knúsMilla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.4.2008 kl. 12:17

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sammála þér sunnanskutla/Eyja. Við erum orðin of pjöttuð í hreinlætinu, annars er þetta svo flott hjá mér, bara ef ég set ekki upp gleraugun þegar ég er að þrífa, þá sé ég ekki skítinn eins vel.
                              Knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.4.2008 kl. 12:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband