Tvær myndir á vegg.

       Hann stendur og starir á mynd af ungum dreng.
       Úr augum drengsins má lesa sorg,
       falda á bak við vonir og glæsta drauma.
       Augu er horfa til stjarnanna,
       augu sem endurspegla sál,
       sál er flýgur hraðar og bjartar en sólin.
       Andlit augna hans gneistar af hugrekki, orku og sakleysi.
       Lífið er hann og hann er lífið.

       Þar er einnig önnur mynd,
       mynd af manni hörkunnar og grimmdarinnar.
       Augun eru köld, dimm og tortryggin,
       þau endurvarpa ótta í hjörtu þeirra sem í þau líta.
       Hann ljómar af dulúð, krafti og deyjandi draumum.
       Hann er dauðinn og dauðinn er hann.

       Maðurinn starir á þessar tvær myndir og hugsar:
       ,, Svo ólíkar og samt svo líkar.
       Ég er þeir báðir og samt er ég hvorugur.
       Þeir voru ég og ég var þeir, en nú er ég annar.
       Ég er þriðja myndin, ég er ný kynslóð af mér."
       Hann glottir hæðinn á svip, gengur út á svalirnar,
       lætur myrkrið umvefja sig, - og horfir til stjarnanna.

                              Arnoddur Magnús Valdimarsson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Eitthvað svo rétt elsku Milla mín

Kristín Gunnarsdóttir, 27.4.2008 kl. 14:39

2 Smámynd: Tiger

  Þetta er mjög spes lýsing. Maður getur svo mikið séð sjálfan sig svona ef maður staldrar við og spáir í ferðalag sitt frá æsku til dagsins í dag - sem og áfram. Maður hefði reyndar gott af því að stoppa augnablik af og til á lífsleiðinni til að sjá hvað er búið, hvað er að gerast og hvað er framundan. Auðvitað er framtíðin óskrifað blað í bók lífsins og okkar að skrifa það vel, með því að staldra við og hugsa - þá gætum við skrifað framhaldið mun betur en ef við bara æðum áfram hugsunarlaust.. Veit svo sem ekkert um það hvort tengja megi þessa flottu sögu svona við lífið, en hver og einn tekur því kannski eins og hann sér/les í hlutina. Knús í Sunnudaginn þinn mín kæra Milla.

Tiger, 27.4.2008 kl. 16:47

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Rosalega er þetta skilningsríkur texti. Ég skil þetta fullkomlega.
Knús til þín elsku Milla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 27.4.2008 kl. 17:50

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þetta er svo mikið rétt Stína mín,

Hann Tiger túlkar þetta svo hugljúft eins og hans er vani, jú Tiger það er óhætt að tengja þessa sönnu sögu við lífið, því hún er lífið í þessu tilfelli.

Róslín mín, þú skilur þetta ég veit það.
                                  Knús kveðjur til ykkar allra
                                     Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.4.2008 kl. 19:24

5 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Þetta er svo fallegur texti, takk Milla mín, gott að fá svona speki og ég nýstaðin upp úr hengirúminu og get varla haldið augunum opnum. Það sækir eitthvað að mér, ég fer snemma í rúmið í kvöld. Vonandi var þetta einn dýrðardagurinn í viðbót við hina Milla mín...Ljós til þín elsku frænka kv. eva

Eva Benjamínsdóttir, 27.4.2008 kl. 20:39

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sömuleiðis Eva frænka mín og ljós og kærleik til þín alla tið.
                             Þín Milla.
                             

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.4.2008 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband