fyrir svefninn.

Guðmundur læknir var greiðamaður á áfengisseðla,
ekki síður en annað.
Einu sinni kemur maður úr Dölunum til Guðmundar
og biður hann um lyfseðla fyrir sig og nokkra kunningja
sína. Meðal þeirra var Hildiþór á Harrastöðum, sem raunar
var nýlega dáinn, en hafði þótt gott í staupinu í lifanda lífi.
Guðmundur sem fylgdist manna best með öllum tíðindum
og hafði frétt lát Hildiþórs, lætur að vísu lyfseðil út á nafn hans,
en segir um leið: ,, Og drekkur hann enn."

                    Kvennagull.

             
Meyjaflokkur bæ frá bæ
              brunar nokkuð villtur.
              telpur lokkar til sín æ
              traustur þokkapiltur.

                          Bogga.

              
Bogga mörgum blíðu gaf,
              brosti allavega.
              því er lítið eftir af
              ylnum meyjarlega.

                   Daginn eftir

             
Öls af völdum ýmsir menn,
              illa tíðum fóru.
              Sést í gegnum suma enn,
              sem að fyllstir vóru.
                                                    Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

  Knús á þig Milla mín inn í nýja viku. Sweet dreams og takk fyrir svefnskammtinn ..

Tiger, 18.5.2008 kl. 21:44

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Takk fyrir mig Milla mín og góða nótt

Huld S. Ringsted, 18.5.2008 kl. 22:03

3 Smámynd: Brynja skordal

Hafðu góða nótt milla mín

Brynja skordal, 18.5.2008 kl. 22:45

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt

Róslín A. Valdemarsdóttir, 18.5.2008 kl. 22:48

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Takk og góða nótt

Sigrún Jónsdóttir, 18.5.2008 kl. 22:53

6 identicon

Takk fyrir kvöldhugvekjuna og góða nótt.

Silla. (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 23:26

7 Smámynd: Erna

Góða nótt Milla mín

Erna, 18.5.2008 kl. 23:29

8 identicon

Notalegt að lesa þetta fyrir svefninn.

Kær kveðja og eigðu góða nótt. 

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 00:05

9 Smámynd: Helga skjol

Góðan daginn Milla mín.

Knús inní daginn

Helga skjol, 19.5.2008 kl. 05:57

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn allar góðar skjóður og snúður þessa bloggs.
Erum við ekki bara í góðum gír inn í vikuna, það held ég nú.
                        Knús á alla
                          Milla.you.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 19.5.2008 kl. 07:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband