Fyrir svefninn.

Björn Olsen rektor var eitt sinn að lesa upp sindaregistur
pilta þeirra, sem mest höfðu skrópað um veturinn,
því um það var hann var hann nákvæmur í bókhaldi.
Jóhann Gunnar Sigurðsson hafði þá tekið sjúkdóm
þann, berklaveiki, er síðar leiddi hann til dauða
og vantaði því oft í skólann.
þegar var komið að honum á listanum, segir rektor Olsen:
,, Og svo er það hann Gunnar Sigurðsson, hann hefur
verið fjarverandi í fimm vikur samtals,
en það er nú alvarlegra með hann, sem betur fer."

                        Til minkunnar.

               
Helst til mörgum hér og þar
                hált er lífs á stræti.
                Mönnum er til minkunnar
                mont og yfirlæti.

                        Á hlutaveltu.

              
Ég hjá konum alltaf á
               eitthvað gott í vonum.
               Dýrðlegt er að dvelja hjá
               ,, dráttarkerlingonum".

                                Góða nótt.Sleeping

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt Milla mín!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 20.5.2008 kl. 21:55

2 Smámynd: Erna

Góða nótt fröken Milla  Nú er það spánn hjá mér, fer suður í fyrramálið og út á fimmtudagsmorgunn  Sendi þér fullt af  sem verða að duga þangað til ég kem heim. Hafðu það sem allra best  Milla mín.

Erna, 20.5.2008 kl. 22:13

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góður.  Góða nótt Milla mín.  Fyrsta vökunóttin mín í nótt eftir langt hlé.

Sigrún Jónsdóttir, 20.5.2008 kl. 22:31

4 Smámynd: Tiger

  Uss.. það sem maður getur stundum hleypt tungunni framúr sjálfum sér! En, maður skildi náttúrulega að hann var að meina að fjarvera stráks væri skiljanleg vegna veikindanna. En stundum stekkur tungan of langt út hjá manni sko .. hahaha.

Knús á þig Milla mín kær og ljúfa og fallega drauma.

Tiger, 20.5.2008 kl. 23:02

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Góða nótt elsku Milla mín

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 20.5.2008 kl. 23:02

6 Smámynd: Brynja skordal

Góða nótt Milla mín

Brynja skordal, 20.5.2008 kl. 23:08

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Erna mín sendi þér hjartans kveðjur og þúsund kossa
og hafið það æðislega gott, og passið vel upp á ykkur þar til ég get tekið við 
                                    Knúsí knús ég veit að það verður gaman.
                                          Milla.Guys.

Ps. ég get ekki verið fröken eftir að vera búin að gifta mig einu sinni
og ég er búin að gera það tvisvar

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.5.2008 kl. 08:16

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tiger þeir gátu nú verið svolítið óheppnir í orðavali þessir gömlu
spekingar, en þetta gerist víst en, ,,sem betur fer".

Stelpur mínar takk fyrir mig. Sigrún mín þú sefur vonandi á þínu græna, en hefur vonandi átt góða næturvakt 
Sjáið nú þetta ég er orðin Maddam, Vallý er ég ekki örugglega frönsk maddam? vill ekki vera Íslensk svona prest maddama þær voru svo miklar gribbur.
                                   Sendi ykkur ljós inn í daginn.
                                     Milla.Guys.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.5.2008 kl. 08:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband