Guði sé lof að ég bý ekki á Akranesi!

Annars þessum yndislega bæ. Þó ég búi þar ekki þá segi
ég mína skoðun á þessu máli.
Mér blöskrar algjörlega þetta rugltal um ekki velferð á
Skaganum.
það getur vel verið að ríkisstjórnin hafi ekki staðið vel að
undirbúningi þess að taka á móti fólkinu, en finnst þeir tóku
ákvörðun um það þá ber að leysa það strax án orða.
Magnús Þór Hafsteinsson fór klaufalegum orðum um þetta í upphafi,
hefur reynt að betrun bæta það síðan en ekki tekist að mínu mati.
Svo er lýst stuðningi við þessa klaufalegu framsetningu.
Ja hérna ég sem ætlaði að gefa Frjálslynda flokknum atkvæði mitt
í næstu kosningum. það verður ekki eftir þetta mál.
Eru þessir menn virkilega enn þá í moldarkofunum?
Eru þeir ekki enn búnir að skilja að allt er að verða án landamæra?.


mbl.is Lýsa stuðningi við Magnús Þór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

  • "Eru þeir ekki enn búnir að skilja að allt er að verða án landamæra?"

Hvað áttu við með því, Guðrún? Eru ekki landamæri milli Rússlands og Finnlands, Hvíta-Rússlands og Póllands, Tyrklands og Grikklands, Kína og nágrannalandanna? (nei, að vísu afmáð milli Kína og Tíbets, einnig milli Rússlands og þriggja stórra héraða í Finnlandi í kjölfar stríðsins, en ekki var það nú til fyrirmyndar). 

Varla viltu, að aflögð verði landamæri milli t.d. Íslands og Rússlands eða Íslands og Íraks.

Taktu nú þessa ábendingu sem jákvætt tækifæri til að skýra betur afstöðu þína.

Með góðum óskum, 

Jón Valur Jensson, 24.5.2008 kl. 11:12

2 identicon

Ég vissi ekki að það væri svona mikið af heimilislausu, matarlausu, heilbrigðisþjónustulausu, soltnu, kúguðu og illa höldnu fólki á Akranesi. Mikið er ég fegin að búa ekki þarna.

Það er auðvitað ekki í boði að senda flóttafólk þangað þar sem þetta er alveg eins og staðurinn sem það flýr, eða þannig hljómar það allavega. Við í Reykjavík tökum bara á móti því, enda af nógu að bíta og brenna hér.

Linda (IP-tala skráð) 24.5.2008 kl. 11:37

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Aðallega er ég að meina að hjálp eigi að vera án landamæra.

Jón afstaða mín er skýr, ég mun ekki hafa samneiti við fólk sem að mínu mati sýnir hroka í sínum ræðum og orðum gagnvart öðru fólki, þess vegna ætlaði ég að velja mér annan flokk til að kjósa,
í næstu kosningum, eftir að hafa verið búin að kjósa X-D í um 45 ár. Vegna hroka. Þú veist alveg nákvæmlega hvað ég á við, þú ert það skynsamur maður að ég held.
                      Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.5.2008 kl. 11:56

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Linda mín ætli það sé nú á almúgans færi að ráða þessu, enda höfum við svo lítið vit á því hvað þarf að gera, allir eru boðnir og búnir til að taka á móti blessuðu fólkinu. Núna allavega.
                                 Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.5.2008 kl. 11:58

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sigga mín það getur vel verið að M.Þ.H sé vænsti maður á bara ekki heima í pólitík að mínu mati, allavega er ég að túlka hans orð sem
eigi réttmæt, og það hefur komið fram hjá fleirum í Frjálslynda Fl.
frekar einkennileg sýn á innflytjenda-málum.
Við höfum áður tekið á móti innflytjendum, upp hafa komið vandamál
þau leyst eftir bestu getu.
það er alveg sama með allt upp koma vandamál.
Ef að M.Þ.H er að meina meiri undirbúning og breytingar á þessum málum ætti hann að láta sína menn á þingi vinna að því, en ekki vekja upp málið á svona viðkvæmu stigi.
En þetta er bara mín skoðun.
Kveðja til þín yfir heiðina.
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.5.2008 kl. 12:09

6 identicon

Heil og sæl

Ég er fædd og uppalin á Akranesi og bý þar enn og ég hef ekki heyrt einn einasta mann vera sammála Magnúsi. Sjálfri ofbýður mér hvað hann er að gera og honum var það kunnugt í byrjun apríl skv. fundargerð félagsmálaráðs að hingað kæmu landlausar konur með börn sín.

 Hann gat nýtt tímann í að undirbúa komu þeirra í stað þess að blanda félagsmálakerfi Akraness í þetta. Magnús er ekki forspár þegar hann talar um aukin vanda í því kerfi. það er ekkert sem segir okkur annað en að þessar konur vilji sjá fyrir sér og sínum og á meðan þær eru að aðlagast Akranesi og okkur sem þar búum, munum við hjálpa þeim og aðstoða á alla vegu.

 Með vinsemd

Sigrún Ríkharðsdóttir (IP-tala skráð) 24.5.2008 kl. 13:15

7 identicon

Alltaf gaman að snúa útúr og taka hlutina úr samhengi.... er ekki annars þannig sem hrottar og fúlmenni fara að til að berja á lítilmagnanum?

Ég segi; tökum á móti lítilmagnanum, en verum ekki hrædd við að spyrja spurninga svo tryggt sé að ekki sé verið að ana að hlutum!

Jón bóndi (IP-tala skráð) 24.5.2008 kl. 13:37

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sigrún takk fyrir gott innlegg það er alveg þörf á því hér, vona ég svo innilega að ykkur gangi vel með að taka á móti konum þessum sem í neyð eru.
                       Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.5.2008 kl. 18:26

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Jón bóndi sammála þér, nema að það voru ekki spurðar neinar spurningar þegar Víetnamarnir komu hingað á sínum tíma,
veit ég ekki betur en þeim hafi gengið afar vel og ekki verið ómagar á kerfinu.
Ríkið borgar með innflytjendum fyrst um sinn þannig að það ætti ekki að vera erfitt að höndla þetta mál.
                                 Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.5.2008 kl. 18:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband